Nýverið bauð EFLA til vísindaferðar fyrir háskólanema í höfuðstöðvum sínum á Lynghálsi 4 í Reykjavík. Viðburðurinn var vel sóttur af nemendum úr verkfræði- og tæknigreinum.
Kynntu sér starfsemi og nýsköpunarverkefni
Gestir vísindaferðarinnar fengu tækifæri til að kynna sér starfsemi EFLU, spjalla við sérfræðinga og skoða fjölbreytt verkefni á kynningarbásum. Boðið var upp á veitingar og fróðlegar samræður um sjálfbærni, nýsköpun og framtíð verkfræðinnar. Á dagskránni voru einnig hústúrar um húsnæðið þar sem nemendur gátu kynnt sér vinnuaðstöðu og tæknilausnir EFLU.
Þá var boðið upp á verkefnakynningar þar sem sérfræðingar frá ólíkum sviðum EFLU kynntu áhugaverð verkefni og lausnir sem móta framtíðina. Stemmning meðal gesta og starfsfólks var frábær og ljóst að vísindaferðir sem þessar skapa mikilvæg tækifæri til tengsla og þekkingarmiðlunar.

Nemendafélögin sem mættu voru meðal annars VÍR, Vélin, Átó, Haxi og Naglarnir frá Háskóla Íslands, Pragma og Technis frá Háskólanum í Reykjavík, auk nemenda í landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Húsfyllir var á vísindaferðinni en alls mættu um 250 nemendur á viðburðinn.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum. EFLA þakkar háskólanemendum úr verkfræði- og tæknigreinum Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík kærlega fyrir komuna, frábær samtöl og sýndan áhuga á starfsemi fyrirtækisins.
1 / 12
2 / 12
3 / 12
4 / 12
5 / 12
6 / 12
7 / 12
8 / 12
9 / 12
10 / 12
11 / 12
12 / 12
