Í vikunni var haldinn foreldramorgunn í húsnæði EFLU þar sem starfsfólk í fæðingarorlofi og með ung börn var boðið velkomið í heimsókn ásamt maka.
Skyndihjálp barna
Foreldramorgnar eru kærkomið tækifæri fyrir starfsfólk til að hittast, spjalla og njóta samveru. Að þessu sinni hófst dagurinn á morgunkaffi og léttu spjalli áður en fulltrúar frá Rauða krossinum komu með fræðslu um skyndihjálp barna. Fjöldi starfsfólks nýtti tækifærið til að fylgjast með, enda var viðburðurinn opinn öllum.
Samverustundir sem þessar skapa líf og hlýju á vinnustaðnum. Starfsfólk í fæðingarorlofi fær tækifæri til að njóta samveru með teymum sínum og margir grípa tækifærið til að hitta vinnufélaga sína og setjast með þeim í hádegismat. Börn og makar fá að upplifa vinnustaðinn í jákvæðu og afslöppuðu samhengi.

Jafnvægi milli vinnu og einkalífs
EFLA er fjölskylduvænn vinnustaður og leggur ríka áherslu á að styðja starfsfólk sitt á öllum lífsskeiðum, ekki síst þegar fjölskyldan stækkar. Við viljum skapa umhverfi þar sem jafnvægi ríkir milli vinnu og einkalífs og þar sem verðandi og nýbakaðir foreldrar finna fyrir stuðningi, sveigjanleika og skilningi.
Í því samhengi eru reglulega haldnir foreldramorgnar þar sem starfsfólki í fæðingarorlofi er boðið velkomið í heimsókn með börnin sín. Viðburðirnir bjóða upp á fræðslu og samveru með samstarfsfólki í hlýlegu og afslöppuðu umhverfi.
Með viðburðum sem þessum vill EFLA stuðla að jafnvægi milli vinnu og einkalífs og minna starfsfólk á mikilvægi þess að hlúa að og eyða tíma með fjölskyldunni.
1 / 6
2 / 6
3 / 6
4 / 6
5 / 6
6 / 6
