Frá Malaví til Mosó

06.08.2024

Fréttir
Þrír menn með blóm.

Knattspyrna Levi og Precious ásamt Sæmundi Sæmundssyni, framkvæmdastjóra EFLU.

„Afturelding bauð drengjunum að æfa með meistaraflokki félagsins meðan á dvölinni stóð og þeir heilluðu bæði þjálfara og leikmenn. Í framhaldi fæddist sú hugmynd um að leyfa þeim að vera með yfir keppnistímabilið og dvelja í Mosó,“ segir Jóhann Bragi Fjalldal, einn forsvari verkefnisins Frá Malaví til Mosó, sem hlaut styrk úr Samfélagssjóði EFLU.

Komu fyrst á Rey Cup

Drengirnir sem um ræðir heita Levi og Precious. Þeir eru hluti af knattspyrnuakademíu sem er starfrækt í Malaví að nafni Ascent Soccer en akademían sendi lið á Rey Cup knattspyrnumótið í Reykjavík síðasta sumar. Levi og Precious voru með í för sem leiðbeinendur & liðsstjórar.

Samkvæmt Jóhanni Braga gengur verkefnið vonum framar. „Þeir æfa með meistaraflokki og eru lykilmenn í U19 liði Aftureldingar sem keppir í efsta riðli 2. flokks á Íslandsmóti KSÍ. Þeir eru einnig að þjálfa yngri flokka þar sem þeir njóti mikilla vinsælda meðal krakkanna og hafa verið að kynna verkefnið og Malaví í skólum í bæjarfélaginu,“ segir Jóhann Bragi.

Vilja koma aftur

Þeim Levi og Precious hefur tekist mjög vel að takast á við aðstæður á Íslandi sem eru afar ólíkar heimalandi þeirra. „Aðstæður eru auðvitað gjörólíkar því sem þeir eiga að venjast - en þeir eru ótrúlega duglegir og ákveðnir í að standa sig vel. Það viðhorf kom þeim í gegnum erfiðustu vetrarmánuðina og aðlögunartímann,“ útskýrir Jóhann Bragi.

Hann segir vonir standa til að hægt verði að bjóða þeim að koma aftur á næsta ári, en það velti á fjármögnun. „Þeir Levi og Precious eru gríðarlega efnilegir knattspyrnumenn og gætu vel gert sig gildandi í íslenskri knattspyrnu, en þurfa að líkindum eitt tímabil í viðbót til að þroskast og þróa sinn leik að íslenskum aðstæðum,“ segir Jóhann Bragi að lokum.

Nánari upplýsingar um Samfélagssjóð EFLU.