Starfsfólk EFLU fékk fræðslu frá Krabbameinsfélaginu á Bleika deginum með áherslu á forvarnir gegn krabbameini og mikilvægi stuðnings við þá sem glíma við sjúkdóminn.
Vellíðan og vitund
Vigdís Guðmundsdóttir, sérfræðingur frá Krabbameinsfélaginu, hélt erindi fyrir starfsfólk þar sem hún sagði frá þema átaksins í ár: Það er list að lifa með krabbameini. Slagorðið dregur fram þær miklu framfarir sem hafa orðið í lyfjum og rannsóknum og hvernig fólk getur lifað lengur og með betri lífsgæðum þrátt fyrir ólæknandi sjúkdóm. Einnig fjallaði hún um stöðu krabbameina á Íslandi, tölfræði, mikilvægi reglulegra skimana og áhrif erfða, umhverfis, lífstíls og aldurs á líkur þess að fá krabbamein.

Fræðsla Vigdís Guðmundsdóttir, sérfræðingur frá Krabbameinsfélaginu, hélt erindi fyrir starfsfólk.
Bleika búðin var auk þess á staðnum þar sem starfsfólk gat keypt vörur til styrktar Krabbameinsfélaginu. Bleiki dagurinn var því ekki aðeins tilefni til að klæðast bleiku heldur hluti af markvissri fræðslu með áherslu á vellíðan á vinnustað og meðvitund um heilsu, forvarnir og samkennd.
Hjá EFLU er lögð áhersla á vellíðan á vinnustað og samfélagslega ábyrgð. Gagnlegt er að taka þátt í samfélagslegum verkefnum eins og bleika deginum til að fá fræðslu og umræðu um málefni sem tengjast heilsu og vellíðan.
1 / 4
2 / 4
3 / 4
4 / 4
