Frágangur einangrunar í steyptum útveggjum

09.04.2014

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

Nú nýverið kom saman hópur nokkurra helstu sérfræðinga landsins á sviði raka- og myglumála til þess að ræða þá þróun sem hefur átt sér stað í uppbyggingu steinsteyptra útveggja, einangraða að innanverðu. Markmið hópsins var að vekja athygli á áhættu í uppbyggingu steinsteyptra útveggja svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi tjón af völdum rangrar útfærslu.

Frágangur einangrunar í steyptum útveggjum

Undanfarin ár hafa orðið mikilar breytingar á hinum "hefðbundna múraða útvegg" einangruðum að innanverðu sem hópurinn telur að stöðva verði strax.

Þróunin er að útveggir, einangraðir að innan, eru klæddir með innveggjakerfi sem er sett beint á kaldan steinsteyptan útvegg. Kerfið er uppbyggt með blikkstoðum þar sem einangrun er sett inn í blikkgrindina. Á blikkgrindina er svo sett rakavörn og lagnagrindinni sleppt og því eru allar lagnir lagðar á bakvið rakavörnina jafnvel út við kaldan útvegginn. Lagningar fara svo allsstaðar í gegnum rakavarnarlagið, bæði í rafmagnstengla og að ofnum með tilheyrandi áhættu á óþéttleika.

Hópurinn sendi nýverið frá sér minnisblað til Minnvirkjastofnunar þar sem varað er við ofangreindri uppbyggingu útveggja vegna mikilla áhættu á raka- og mygluskemmdum. Mannvirkjastofnun brást strax við og sendi minnisblaðið til allra byggingarfulltrúa landsins. Minnisblaðið birtist einnig á vef arkitektafélags Íslands og mun birtast í Verktækni. Þá birtist það á veftímaritinu Eyjunni.

Frekari upplýsingar má lesa í minnisblaði