Beint í efni

Fram­úr­skar­andi 16. árið í röð

31. október 2025

Fréttir
Tvær manneskjur með viðurkenningarskjal.

Framúrskarandi Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannauðs, og Guðmar Guðmundsson, fjármálastjóri EFLU, tóku við viðurkenningunni.

EFLA hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2025 og er það í 16. skipti í röð sem fyrirtækið hlýtur þennan heiður.

Efst í sínum flokki annað árið í röð

Af þeim 1.155 fyrirtækjum sem uppfylltu ströng viðmið Creditinfo í ár er EFLA eitt af einungis 50 fyrirtækjum sem hafa verið á listanum frá upphafi.

EFLA er nú í 47. sæti á heildarlista allra fyrirtækja og hækkar þar um tvö sæti frá fyrra ári. Þá heldur fyrirtækið áfram að leiða sinn geira verandi í fyrsta sæti í flokki fyrirtækja sem starfa á sviði sérfræðilegrar-, vísindalegrar- og tæknilegrar starfsemi annað árið í röð.

Skýr markmið

Guðmar Guðmundsson, fjármálastjóri EFLU, segir að árangurinn endurspegli markvissa stefnu og samfellda viðleitni til að gera betur á öllum sviðum. „Við höfum sett okkur skýr markmið og unnið stöðugt að því að efla starfsemina og auka gæði í öllu sem við gerum. Það er sannarlega ánægjulegt að sjá þessa vinnu skila sér. Aðeins fá fyrirtæki ná þessum árangri, sem undirstrikar hversu mikið afrek þetta er,“ segir Guðmar og bendir á að árangurinn sé fyrst og fremst tilkominn vegna samstöðu og metnaðar starfsfólks og eigenda. „Það eru forréttindi að fá að starfa með svona öflugum hópi.“

Að hans sögn byggist starfsemi EFLU á ábyrgum og traustum grunni sem einkennir samfélagslega ábyrgt fyrirtæki. „Við leggjum áherslu á heilbrigðan rekstur sem tryggir starfsfólki góða vinnuaðstöðu og sanngjörn kjör, viðskiptavinum áreiðanlega þjónustu og eigendum eðlilega ávöxtun af fjárfestingu sinni. Um leið stöndum við undir samfélagslegum skuldbindingum og tökum virkan þátt í að byggja upp samfélagið á jákvæðan hátt,“ segir hann að lokum.

Byggt á traustum grunni

Creditinfo framkvæmir árlega greiningu á fjárhagslegum styrk og stöðugleika íslenskra fyrirtækja. Til að teljast framúrskarandi þarf rekstur fyrirtækis að vera traustur, stöðugur og byggður á sterkum stoðum. Slík fyrirtæki eru líkleg til að efla hag hluthafa og fjárfesta og njóta jafnframt aukins trausts í viðskiptum.