Beint í efni

Fulltrúar EFLU sóttu Tech Show í London

30. mars 2026

Fréttir
Þrír starfsmenn standa brosandi við sýningarbás með tæknibúnaði á alþjóðlegri ráðstefnu eða sýningu.

Sérfræðingar EFLU tóku þátt í Tech Show í London fyrir stuttu sem er ein stærsta tæknisýning Evrópu á sviði stafrænnar innviðaþróunar. Markmið þátttökunnar var að auka tengslamyndun og fá kynningu á nýjustu tæknilausnum, ekki síst í tengslum við hönnun, rekstur og orkuskilvirkni gagnavera.

Auka þekkingu á sviði gagnavera

Jón Valgeir Halldórsson, Ágúst Sturla Jónsson og Atli Már Ágústsson sóttu sýninguna fyrir hönd EFLU. Verkefnum sem sérfræðingar EFLU sinna á sviði gagnavera hefur farið hratt fjölgandi, en fyrirtækið er nú með tvö gagnaversverkefni í hönnun, alls fimm byggingar, ásamt því að veita fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu við önnur gagnaver á Íslandi.

Á sýningunni gafst starfsfólki EFLU kostur á að eiga samtöl við tækniframleiðendur, alþjóðlegan hóp sérfræðinga í skýjalausnum auk þess að sækja fyrirlestra og kynningar um nýjustu strauma í hönnun og rekstri gagnavera. Sérstök áhersla var lögð á lausnir sem tengjast sjálfbærni, orkunýtingu og samþættingu gagnavera við orkukerfi og samfélög, en þessi atriði skipta sífellt meira máli við þróun slíkra mannvirkja.

Fimm ráðstefnur undir sama þaki

Tech Show London er haldin árlega og þangað mæta yfir 17.000 þátttakendur, hundruð sýnenda og fjölda fyrirlesara úr alþjóðlegum tækniiðnaði. Sýningin er mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki og sérfræðinga sem starfa að stafrænum innviðum, og var kastljósinu sérstaklega beint að skýjalausnum, gervigreind, gagnavinnslu, netöryggi og gagnaverum.

Sýningin samanstendur af fimm sérhæfðum ráðstefnum undir sama þaki, þar á meðal Data Centre World, þar sem fjallað er sérstaklega um innviði gagnavera, hönnun, orkuskilvirkni, kælingu, rekstur og stafræna stjórnun. Aðrir hlutar sýningarinnar taka til skýja- og gervigreindarlausna, DevOps, netöryggis og gagnagreiningar, sem allt tengist nánum böndum þeirri þróun sem á sér stað í gagnaversiðnaðinum.

EFLA - Fulltrúar EFLU sóttu Tech Show í London