Nýverið hélt EFLA upplýsinga- og kynningarfund þar sem kynntar voru forsendur og kerfismörk LCA- og LCC-greininga sem EFLA vinnur að í tengslum við innleiðingu PPWR-reglugerðarinnar á Íslandi.EFLA hefur áratugareynslu af vistferilsgreiningum sem þessum á ólíkum sviðum samfélagsins sem stutt hafa fyrirtæki og stjórnvöld við ákvarðanatöku.
Fundurinn var ætlaður lykilhagaðilum sem koma að verslun, framleiðslu, endurvinnslu og stjórnsýslu, með það markmið að styðja við upplýsta og gagnsæja umræðu um upptöku fjölnota umbúðakerfa á Íslandi.
Markmið fundarins var að kynna grunnforsendur greininganna og fá endurgjöf áður en vinnan heldur áfram. Fulltrúar fyrirtækja og stofnana komu saman til að ræða samanburð einnota og fjölnota kerfa við íslenskar aðstæður og lögðu fram ýmsar ábendingar sem munu nýtast við áframhaldandi útfærslu forsenda og ólíkra sviðsmynda.
PPWR reglugerðin í íslensku samhengi
Fundurinn hófst á yfirliti yfir PPWR-reglugerðina og áhrif hennar á íslenskan markað. Hafsteinn Snæland Grétarsson frá Ölgerðinni flutti erindi um innleiðingu PPWR-reglugerðarinnar og fór yfir helstu skyldur og kröfur sem reglugerðin leggur á söluaðila og framleiðendur, sem og áfangaskipta innleiðingu hennar á komandi árum.
Aðferðafræði vistferilsgreininga og alþjóðleg samanburðardæmi voru næst til umfjöllunar. Alexandra Kjeld frá EFLU kynnti hvernig LCA-greiningum er beitt til að meta og bera saman umhverfisáhrif einnota og fjölnota umbúðakerfa yfir líftíma þeirra og setti íslensku greiningarnar í samhengi við sambærileg verkefni erlendis.

Kostnaður yfir líftíma kerfa
Heildarkostnaður kerfanna verður skoðaður með líftímakostnaðargreiningum og fjallaði Guðmundur Sigfinnsson frá EFLU um slíkar greiningar og hvernig þær eru notaðar til að meta fjárhagsleg áhrif mismunandi kerfa. Kostnaður vegna fjárfestinga, reksturs og umsýslu yfir líftíma umbúða var skoðaður í því samhengi.Lykilforsendur greininganna og næmni niðurstaðna voru sérstaklega ræddar. Eldar Máni Gíslason frá EFLU kynnti helstu forsendur sem greiningarnar byggja á, þar á meðal útfærslu dreifingar, söfnunar og hreinsunar og sviðsmyndir í tengslum við hegðun neytenda, og aðra þætti sem hafa mest áhrif á niðurstöður.
Fundinum lauk með opnum umræðum þar sem þátttakendur deildu sjónarmiðum sínum og bentu á áskoranir og tækifæri. Endurgjöf fundargesta mun nýtast EFLU við að fínstilla greiningarnar áfram, með það að markmiði að leggja fram faglegt, óháð og raunhæft mat á innleiðingu PPWR-reglugerðarinnar við íslenskar aðstæður.

