Fyrsta áfanga við smíði göngu­brúar yfir Breiðholtsbraut

23.07.2018

Fréttir
Urban area with roads, vehicle and buildings

Framkvæmdum við smíði nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Breiðholtsbraut miðar vel áfram. Um helgina fór fram uppsteypa brúarinnar og lauk þar með 1. áfanga verksins.

Nýja göngubrúin kemur til með að tengja saman Selja- og Fellahverfi og verða mikil samgöngubót ásamt því að auka umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Brúin er eftirspennt steinsteypubrú í fjórum burðarhöfum, alls 86 metra löng, og svipar til göngubrúnna yfir Hringbraut og Njarðargötu í Reykjavík, í gerð og formi.

Síðastliðinn laugardag, 21. júlí, var yfirbygging brúarinnar steypt og af þeim sökum var lokað fyrir umferð við Breiðholtsbrautina í um 6 klukkutíma.

Göngu- og hjólastígar útbúnir

Á næstunni hefst vinna við 2. áfanga verksins ásamt því sem göngu- og hjólastígar að brúnni verða útbúnir. Stígarnir verða lagðir austan megin við Breiðholtsbrautina og tengjast við Fellahverfið, bæði til suðurs og austurs. Áætlað er að brúin verði tekin í notkun 1. október næstkomandi.

Verkefnið er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. EFLA sá um hönnun brúarinnar, í samstarfi við Studio Granda arkitekta, ásamt því að hanna göngu- og hjólastíga og lýsingu. Smíði göngubrúarinnar er í höndum verktakans Skrauta ehf. og sér Urð og Grjót ehf. um gerð göngu-og hjólastíga.