HECLA, dótturfyrirtæki EFLU í Frakklandi, fagnar á þessu ári 25 ára afmæli. Fyrirtækið var stofnað þann 31. mars árið 2001 og hefur frá upphafi gegnt mikilvægu hlutverki í hönnun og þróun orkuflutningsmannvirkja í Frakklandi, einkum á sviði raforkuflutnings.
HECLA var stofnað á tímum mikillar uppbyggingar í franska orkuflutningskerfinu, í kjölfar umfangsmikilla skemmda á innviðum eftir óveður um síðustu aldamót. Frá upphafi byggði félagið á sérhæfðri verkfræðilegri þekkingu á hönnun loftlína og burðarvirkja og lagði áherslu á fagleg vinnubrögð og náið samstarf við rekstraraðila orkukerfa.
Tengsl HECLU og EFLU
Tengsl HECLU og EFLU ná allt aftur til stofnunar félagsins. HECLA var stofnað af fyrirtækjunum Línuhönnun og Afli, sem síðar sameinuðust undir merkjum EFLU, í samstarfi við Landsvirkjun og Jean Chauveau, sem gegndi lykilhlutverki í þróun félagsins.
Árið 2022 varð EFLA aðaleigandi HECLA SAS eftir kaup á eignarhlutum Landsvirkjunar og Jean Chauveau. Með þeim kaupum styrktust tengsl fyrirtækjanna enn frekar og HECLA varð formlega hluti af alþjóðlegri samstæðu EFLU.
Hluti af alþjóðlegri þróun EFLU
Í dag er HECLA, sem er eitt af nokkrum dótturfélögum EFLU í Evrópu, rótgróið og sjálfstætt verkfræðifyrirtæki innan EFLU-fjölskyldunnar með starfsstöð í París og skýra sérhæfingu í orkuflutningsmannvirkjum. Félagið er virkur þátttakandi í þróun og styrkingu raforkukerfa í Frakklandi og hefur jafnframt komið að verkefnum á alþjóðavettvangi.
25 ára afmæli HECLU markar mikilvægan áfanga. Með traustum grunni, sterkum tengslum við EFLU og skýrri sérhæfingu á sviði orkuflutningsmannvirkja er HECLA vel í stakk búið til að takast á við þau verkefni og tækifæri sem fylgja orkuskiptum og uppbyggingu innviða í Evrópu á komandi árum.
