Hjólaleiðir hlutu nýsköpunarverðlaun

13.02.2014

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

Verkefnið Hjólaleiðir á Íslandi hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands. Verkefnið var unnið af starfsmönnum EFLU verkfræðistofu, þeim Evu Dís Þórðardóttur sem kemur frá Háskólanum í Reykjavík og Gísla Rafni Guðmundssyni sem kemur frá Háskólanum í Lundi. Leiðbeinendur þeirra voru þau Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir og Ólafur Árnason starfsmenn EFLU.

Hjólaleiðir hlutu nýsköpunarverðlaun

Verkefnið var styrkt af nýsköpunarsjóði námsmanna en markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til samvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni.

Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðdegis. Fimm verkefni voru tilnefnd til verðlaunanna af tæplega hundrað verkefnum þetta árið. Markmið verðlaunanna er að heiðra námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna.

Verkefnið fólst í því að vega og meta hjólaleiðir á Íslandi út frá kröfum EuroVelo verkefnisins með það að markmiði að koma einni leið á Íslandi inn á kort EuroVelo. EuroVelo heldur utan um meginkerfi reiðhjólaleiða í Evrópu og er ætlað að stuðla að sjálfbærri ferðamennsku. Á korti EuroVelo eru í dag 14 leiðir, sem eru samtals um 45.000 km langar. Skráning á leið um Ísland inn á kort samtakanna er mikilvægur þáttur í að vekja athygli á Íslandi sem viðkomustað fyrir hjólaferðamenn og auka tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu hér á landi. Jafnframt var hér safnað saman á einn stað mikilvægum upplýsingum um leiðirnar fyrir ferðaþjónustuaðila og umsjónarmenn EuroVelo hér á landi.

Hluti af verkefninu fólst í að koma á samstarfi aðila innan Íslands sem tækju að sér að fóstra verkefnið til framtíðar. Ferðamálastofa ásamt Landssamtökum hjólreiðamanna og öðrum hagsmunaaðilum hafa nú sent umsókn til EuroVelo, fyrir hönd Íslands, þar sem gögn nýsköpunarverkefnisins eru nýtt. Ferðamálastofa hefur tekið að sér að fóstra verkefnið fyrir Íslands hönd.

Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér.