Starfsfólk EFLU sá um hljóðhönnun leikskólans Öldunnar á Hvolsvelli sem hlaut íslensku hljóðvistarverðlaunin í vikunni. Þetta er í annað sinn sem þessi verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi hljóðvist bygginga, verðlaunin eru veitt ábyrgðar- og rekstraraðilum.
Vellíðan fyrir börn og starfsfólk
Hljóðhönnunin var unnin af sérfræðingum EFLU, ásamt Kristínu Ómarsdóttur, hljóðráðgjafa, og arkitektateym hjá P Ark, auk innanhússarkitektsins Sverris Þórs Viðarssonar. Með þessari samvinnu var tryggt að hljóðvist leikskólans uppfyllti ströngustu kröfur um gæði og vellíðan fyrir börn og starfsfólk. Við hönnun leikskólans voru viðmið í hljóðflokki A samkvæmt hljóðflokkunarstaðli ÍST45:2016 nýtt sem markmið.

Viðurkenningin var afhent Antoni Kára Halldórssyni, sveitarstjóra Rangárþings Eystra, og Sólbjörtu S. Gestsdóttur, leikskólastjóra. Í ávarpi við afhendingu lagði Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands, áherslu á að góð hljóðvist sé grunnþáttur í heilbrigðu og manneskjulegu umhverfi, sérstaklega í leikskólum þar sem hún hefur bein áhrif á líðan barna og starfsfólks.
Íslensku hljóðvistarverðlaunin eru samstarfsverkefni Verkfræðingafélags Íslands og Íslenska hljóðvistarfélagsins. Dómnefndin metur verkefni út frá hljóðvist, hugmyndafræði og fagurfræði.
