Rannsóknarverkefni í samstarfi við Reykjavíkurborg var unnið á hljóðvistarsviði EFLU. Verkefnið ber heitið Hljóðvist skólabygginga, Samanburður á viðmiðunargildum, mæligildum og áliti notenda.
Hljóðvist skólabygginga
Nýjar áherslur í kennsluháttum hafa í för með sér breyttar forsendur fyrir hljóðvistarhönnun.
Í rannsóknarverkefninu var gerð samantekt og samanburður á viðmiðunargildum í íslenskri byggingarreglugerð og sænskum hljóðflokkunarstaðli SS 025268.
Þá var spurningalisti sendur út til kennara og mælingar framkvæmdar í viðeigandi skólarýmum.
Grein um rannsóknarverkefnið birtist í árbók verkfræðingafélagins árið 2008 og jafnframt erindi um það flutt á samnorrænni ráðstefnu um hljóðvist í ágúst 2008.
