Hljóðvistarhönnun fyrir Sigurrós

09.09.2015

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

EFLA verkfræðistofa kom nýlega að gerð nýs hljóðvers fyrir hljómsveitina Sigurrós, þar sem sérfræðingar hljóðvistarsviðs EFLU útfærðu alhliða hönnun á hljóðvist rýmisins. Um er að ræða u.þ.b. 300 m2 rými sem hljómsveitin notar sem sína helstu vinnuaðstöðu frá degi til dags. Hljóðverið er staðsett í gömlu iðnaðarhúsnæði í Reykjavík.

Hljóðvistarhönnun fyrir Sigurrós

Þar sem tónlist Sigurrósar er afar fjölbreytt og að mörgu leyti óhefðbundin var ákveðin áskorun að stilla upp ákjósanlegum hönnunarforsendum fyrir hljómburð rýmisins, en almennt er heppilegur hljómburður mjög háður því hvers konar tónlist er leikin í rýminu. Stefnt var að hljómburði sem myndi falla vel að kjarnahljómi sveitarinnar en jafnframt vera nægilega hlutlaus til að henta vel fyrir flestar tegundir nútímatónlistar.

Hönnunarferlið fór þannig fram að fyrst var hljómburður húsnæðisins mældur, áður en ráðist hafði verið í nokkrar aðgerðir varðandi hljóðvist rýmisins. Í kjölfarið var sett upp þrívítt tölvulíkan af rýminu í sérstökum hljómburðarhugbúnaði og líkanið kvarðað við niðurstöður mælinganna. Við hönnun hljómburðarins var svo stuðst við tölvulíkanið, en með því að nota slík líkön er að hægt að hanna hljómburð með mikilli vissu um áreiðanleika hönnunarinnar. Hannaðar voru fimm mismunandi gerðir hljóðgildra, sem hver um sig hafði virkni á mismunandi hluta heyranlega tíðnirófsins, og er það samspil þessara hljóðgildra sem stjórna hljómburði rýmisins. Þá var heppileg hljóðdreifing í rýminu einnig tryggð.

Einnig var veitt ráðgjöf vegna hljóðeinangrunar húsnæðisins en önnur hljóðver eru í sömu byggingu á hæðinni fyrir ofan og því mikilvægt að hafa mjög góða hljóðeinangrun milli rýmanna. Til að bæta hljóðeinangrunina var hannað annað vel hljóðeinangrandi loft til viðbótar því sem fyrir var og komið fyrir neðan núverandi loft.

Þá hafði EFLA eftirlit með framkvæmd endurbótanna. Að loknum framkvæmdum fóru fram mælingar á hljóðvist rýmisins og komu niðurstöður mælinganna afar vel út og í samræmi við hönnun EFLU. Þá hafa notendur lýst yfir mikilli ánægju með framkvæmdina.