„Þetta er allt að gerast og búast má við að bókin komi út í ágúst,“ segir Andrea Björt Ólafsdóttir, sem vinnur að bókinni Hvernig varð ég til?, sem fékk styrk úr Samfélagssjóði EFLU.
Opinská og heiðarleg
Andrea Björt segir að hugmyndin að bókinni hafi kviknað í október í fyrra. „Ég og konan mín, Ingibjörg Rún, eignuðumst strákinn okkar hann Blæ með aðstoð gjafa. Ég hugsaði um hvernig ég myndi vilja upplýsa hann um uppruna sinn og hvað gæti nýst honum til framtíðar.“
Hún vissi vel að það væri mikilvægt að upplýsa drenginn um hvernig hann varð til. „Þótt það sé almennt mikilvægt að foreldrar séu opinskáir og heiðarlegir gagnvart börnum um hvernig þau verða til er það sérstaklega mikilvægt ef egg- og/eða sæðisgjöf er notuð,“ bætir Andrea við.
Engin sams konar bók er til á íslensku. „Ég vildi hafa bókina á íslensku, þótt hún komi líka út á ensku, og að hún væri eiguleg, falleg og notendavæn. Auk þess vildi ég að hægt væri að aðlaga hana að öllum fjölskyldum, óháð kyni og hvernig barnið varð til,“ útskýrir Andrea og bætir við að Sveinn Snær sjái um hönnun og umbrot og Alda Lilja um myndlýsingar.
Fleiri en ein leið til að búa til barn
Hún vill að bókin hjálpi fjölskyldum að upplýsa börn um uppruna sinn. „Einnig að börn leitist í bókina og að hún valdefli þau. Auk þess að varpa ljósi á að það eru fleiri en ein leið til að búa til barn. Það væri líka gaman ef bókin kæmi út á fleiri tungumálum,“ segir Andrea.
Fyrir þau sem vilja nánari upplýsingar þá er hægt að fylgjast með á Instagram: @hvernig_vard_eg_til og Facebook: „How Was I Made? - Hvernig varð ég til?“ „Einnig ef fólk vill tryggja sér eintak af bókinni áður en hún fer í dreifingu þá er hægt senda skilaboð á þessa miðla,“ segir Andrea Björt að lokum.