Jarðvarmi gegnir sífellt stærra hlutverki í orkuskiptum heimsins og er einn af lykilþáttum í uppbyggingu sjálfbærra orkukerfa til framtíðar. Sérfræðingar EFLU sóttu jarðvarmaráðstefnuna World Geothermal Congress (WGC) í Kanada þar sem þessi þróun var í forgrunni og staða íslenskrar þekkingar í fremstu röð á alþjóðlegum vettvangi augljós.
WGC er stærsta ráðstefna heims á sviði jarðvarma þar sem koma saman sérfræðingar, fulltrúar stjórnvalda og fyrirtæki til að ræða sjálfbæra nýtingu auðlinda og þróun orkukerfa til framtíðar.
Þrír sérfræðingar frá EFLU tóku þátt í ráðstefnunni, Skúli B. Jónsson sviðsstjóri iðnaðar, Kristleifur Guðjónsson og Aron Óttarsson sérfræðingar á iðnaðarsviði. Þátttakan veitir mikilvæga innsýn í alþjóðlega þróun og styrkir tengsl EFLU við alþjóðlegt fagumhverfi.
Jarðvarmi í alþjóðlegu samhengi
Jarðvarmi er í dag orðinn hluti af alþjóðlegum orkulausnum og horfa lönd um allan heim til nýtingar hans í raforkuframleiðslu, húshitun og iðnaði til að draga úr losun og auka orkuöryggi.
Þekking á sviði jarðvarma er því sérlega verðmæt og hefur áratuga reynsla skipað Íslandi í fremstu röð í þróun jarðvarmalausna. Þetta skapar aukin tækifæri til útflutnings þekkingar og lausna í orkuskiptum framtíðarinnar.
EFLA hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf og hönnun á sviði jarðvarma og hefur komið að fjölbreyttum jarðvarmaverkefnum, allt frá orkuvinnslu til beinnar nýtingar, svo sem í iðnaði, byggingum og innviðum.
Þessi breidd er lykilatriði í þeirri þróun sem nú á sér stað, þar sem áhersla er lögð á heildræna nýtingu jarðvarma í orkuskiptunum.
Tækifæri í beinni nýtingu jarðvarma
Á ráðstefnunni tóku sérfræðingar EFLU þátt í viðburði um beina nýtingu jarðhita þar sem fjallað var um orkuöryggi og tækifæri í nýtingu lágvarma. Aron Óttarsson hélt erindi um reynslu Íslands af því að nýta jarðhita, allt niður í um 20°C, í fiskeldi. Þar er lághitaorka notuð til að hita sjóvatn og skapa þannig kjöraðstæður fyrir fisktegundir á borð við lax og bleikju.
Fiskeldi á Íslandi skilaði um 442,2 milljónum USD í útflutningsverðmæti árið 2025 og hefur greinin vaxið hratt, meðal annars vegna aðgengis að lághita jarðvarma. Með áframhaldandi uppbyggingu landeldis gæti framleiðslugeta aukist verulega og útflutningsverðmæti greinarinnar orðið mun meiri á næstu árum.
Í erindinu kom einnig fram hvernig bein nýting jarðhita í fiskeldi getur stutt við fæðuöryggi og dregið úr innflutningsþörf og skapað störf á svæðum þar sem atvinnutækifæri eru takmörkuð. Þannig getur jarðvarmi verið mikilvæg forsenda fyrir uppbyggingu verðmætra útflutningsgreina, ekki aðeins í orkuskiptum heldur einnig í sjálfbærri atvinnuþróun.

Aron Óttarsson sérfræðingur á iðnaðarsviði EFLU hélt erindi um nýtingu lághita

Hvítbók um orkuskipti
Samhliða WGC gaf Green by Iceland út hvítbók þar sem dregin er upp heildstæð mynd af stöðu Íslands í orkuskiptum og þeim möguleikum sem felast í útflutningi grænna lausna. Sérfræðingar EFLU komu að þróun, skrifum og rýni hvítbókarinnar og lögðu þar með sitt af mörkum við að móta efni hennar og faglegt inntak.
Hvítbókin undirstrikar meðal annars aukna eftirspurn á alþjóðlegum vettvangi eftir áreiðanlegum og endurnýjanlegum orkugjöfum, mikilvægi íslenskrar þekkingar, ráðgjafar og hönnunar í orkuskiptum og þau sóknarfæri sem felast í þróuninni fyrir íslensk fyrirtæki til að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum.
Inntak ritsins fellur vel að starfsemi EFLU og þeirri vegferð sem fyrirtækið hefur lagt sig fram um að vera hluti af, þar sem sérfræðiþekking í jarðvarma og sjálfbærum orkulausnum er nýtt til að skapa verðmæti bæði innanlands og erlendis.
Hægt er að skoða ritið á heimasíðu Green by Iceland.
