Jónína Björk Vilhjálmsdóttir, sviðsstjóri þróunar hjá EFLU, hlaut Stjórnendaverðlaun Gallup árið 2026, en verðlaunin voru afhent í gær, 12. mars, á árlegum morgunverðarfundi Stjórnendaráðgjafar Gallup.
Sem sviðstjóri þróunar stýrir Jónína uppbyggingu og rekstri sviðs sem styður allar einingar EFLU, bæði á Íslandi og í erlendum dótturfélögum. Undir sviðinu starfa teymi á sviði markaðssetningar og miðlunar, stafrænnar þróunar og upplýsingatækni, gæða og umbóta, sem og viðskiptaþróunar og nýsköpunar.
„Ég er stolt af sviðinu mínu og því trausti sem við höfum byggt upp í gegnum breytingar, vöxt og ólíkan bakgrunn. Ég hef lagt áherslu á að skapa rými þar sem fólk upplifir traust, tilgang og að framlag hvers og eins skiptir raunverulegu máli,” segir Jónína Björk og bætir við. „Þessi viðurkenning tilheyrir ekki mér einni heldur er hún sameiginlegur árangur okkar allra.“
Jónína var í hópi fimm verðlaunahafa sem valdir voru úr hópi stjórnenda sem mældust hæst hvað varðar helgun starfsfólks í alþjóðlegum gagnabanka Gallup sem inniheldur alls um 64 milljónir svara. Helgun starfsfólks (e. employee engagement) á við um þátttöku og áhuga starfsfólks á vinnu sinni og tengist beint lykilmælikvörðum í rekstri fyrirtækja, svo sem framleiðni, gæðum, öryggi og starfsmannaveltu.
Starfsfólk EFLU óskar Jónínu Björk innilega til hamingju með þessi verðlaun.
