Beint í efni

Kol­efn­is­spor íslenskra brúa

15. apríl 2026

Blogg
Trébrú með handriðum liggur yfir grunnt, grýtt vatn í hrjóstrugu hraunlandslagi og leiðir að vegi sem liggur um mosavaxið hraun, með snævi þakið fjall í bakgrunni undir heiðum himni.

Hestabrú yfir Þjórsá.

Á Degi verkfræðinnar 2026 fjölluðu sérfræðingar EFLU um kolefnisspor íslenskra vegbrúa og hvernig hægt er að nálgast það með samræmdum hætti og skýrri markmiðasetningu. Á síðustu árum hafa auknar kröfur verið gerðar um að mannvirkjahönnun taki mið af kolefnisspori og langtímaáhrifum á umhverfið. Brýr skipa þar sérstakan sess, enda stór og efnisfrek mannvirki sem eru hönnuð til að endast í áratugi eða jafnvel aldir.

Grunnur verkefnisins íslenskar vegbrýr

Umfjöllunin byggir á rannsóknarverkefni sem hlaut styrk frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar og var kynnt árið 2024. Í kjölfarið hefur verið unnið markvisst áfram með niðurstöður verkefnisins til að þróa aðferðafræði sem nýtist í daglegri hönnun og ákvarðanatöku. Markmiðið er ekki að setja nýjar hömlur, heldur að skapa sameiginlegan ramma til að meta og ræða kolefnisspor brúa á skiljanlegan og sambærilegan hátt.

Grunnur verkefnisins er gagnagrunnur yfir 64 íslenskar vegbrýr sem byggðar voru á árunum 1980 til 2025. Brýrnar spanna breitt svið bæði hvað varðar lengd og gerð, allt frá stuttum brúm til lengri mannvirkja. Flestar þeirra eru hefðbundnar íslenskar vegbrýr, almennt um tíu metra breiðar með tveimur akreinum og eru flestar í eigu Vegagerðarinnar. Með því að horfa sérstaklega til brúa sem voru byggðar eftir árið 2012 er hægt að leggja mat á kolefnisspor út frá hönnunarforsendum sem eru sambærilegar þeim sem notaðar eru í dag.

Vistferilsgreiningar og kolefnisspor

Kolefnisspor var metið á fermetra brúardekks. Sú nálgun gerir samanburð mögulegan, en um leið kemur í ljós að gerð brúar skiptir máli. Í styttri brúm hefur undirbygging hlutfallslega meiri áhrif á kolefnisspor á hvern fermetra en í lengri brúm þar sem áhrifin dreifast á stærra flatarmál. Slíkur skilningur er mikilvægur við túlkun niðurstaðna og markmiðasetningu.

Mat á innbyggðu CO₂ byggir á einfölduðu líkani sem nær til fjögurra helstu byggingarefna í brúargerð. Notaðar voru umhverfisyfirlýsingar fyrir efni eins og þau eru framleidd í dag, ásamt forsendum um efnisflutninga. Í reiknilíkaninu er miðað við að framleiðsla á þessum efnum valdi 80% af kolefnisspori brúa.

Losun nær til vistferilsfasa A1-A3, framleiðslu og öflunar hráefna, A4, flutninga byggingarefna, og A5, framkvæmda á verkstað, og er sett fram sem hlutfall af flatarmáli brúardekks. Þótt forsendurnar séu einfaldar hafa þær verið samræmdar við ítarlegri vistferilsgreiningar, einnig kallaðar lífsferilsgreiningar, og nýtast vel til samanburðar innan gagnasafnsins.

Loftmynd af vegamótum þar sem hringtorg tengist undirgöngum undir breiðan þjóðveg í dökku hraunlandslagi, með bílum á ferð og grænum golfvelli í bakgrunni.

Krýsuvíkurvegur.

Reiknilíkan hannað

Áherslan er ekki að endurreikna fortíðina heldur að leggja grunn að framtíðinni. Með samanburði milli brúa sést að hægt er að stefna að lægra kolefnisspori, sambærilegu því sem best gerist í dag, án þess að breyta grundvallarhönnun eða virkni mannvirkja. Í því samhengi kemur einnig í ljós að minna kolefnisspor og hagkvæmni í byggingu fara oft saman. Af þeim sökum er lögð áhersla á markmið fremur en fastar reglur, þar sem óvissa og sértilvik eru óhjákvæmileg í brúarhönnun.

Til að styðja þessa nálgun hefur verið þróað reiknilíkan, LOKI, fyrir Vegagerðina. Líkanið byggir á reynslu af vistferilsgreiningum á Norðurlöndum og nær yfir helstu vistferilsfasa fyrir vegi, brýr, göngu- og hjólastíga og jarðgöng. Niðurstöður eru settar fram sem CO₂-ígildi á fermetra mannvirkis, með skilgreindum vikmörkum eftir hönnunarstigi. Þannig er hægt að styðja við ákvarðanatöku snemma í ferlinu og fylgja þeim eftir þegar verkefni þróast.

Jafnframt er lögð áhersla á að hönnuðir hafa ekki fulla stjórn á raunverulegu kolefnisspori framkvæmdar. Framkvæmdatími, aðferðafræði, efnisval verktaka og ytri aðstæður hafa öll áhrif. Endanlegt kolefnisspor liggur því ekki fyrir fyrr en framkvæmdum lýkur og gögn hafa verið tekin saman. Markmiðasetning er því fyrst og fremst tæki til að auka meðvitund og styðja við betri og upplýstari ákvarðanir, en ekki til að setja algildar kröfur.

Horfa einnig til viðhalds og nýtingar

Framtíðarsviðsmyndir sýna að verulegur hluti kolefnisspors brúa er bundinn við steinsteypu og stál. Í báðum efnisflokkum eru fyrirhugaðar framfarir sem leiða til minni losunar, meðal annars með breyttri framleiðslutækni, aukinni endurvinnslu og kolefnisföngun. Slíkar sviðsmyndir gefa til kynna lægra kolefnisspor til framtíðar, en jafnframt er mikilvægt að taka tillit til óvissu, þar sem þróun tekur tíma.

Að lokum er vert að minna á að sjálfbærni snýst ekki eingöngu um koldíoxíð, þ.e. CO₂. Auðlindir eru takmarkaðar og stór hluti yfirborðs jarðar hefur þegar verið raskaður. Í því samhengi er mikilvægt að horfa einnig til viðhalds og nýtingar þess sem þegar hefur verið byggt. Sjálfbærustu mannvirkin eru oft þau sem endast lengi og nýtast vel.

EFLA - Kolefnisspor íslenskra brúa