Beint í efni

Kristín flutti erindi á úr­slita­keppni Pangea

5. maí 2026

Fréttir
Sigurvegari í stærðfræðikeppni Pangea ásamt Kristínu Friðgeirsdóttur og stjórnanda keppninnar.

Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, hélt erindi á úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu sem var haldin í Menntaskólanum í Hamrahlíð laugardaginn 18. apríl. EFLA hefur verið einn af styrktaraðilum keppninnar undanfarin ár í gegnum Samfélagssjóð fyrirtækisins.

Stærðfræðin mikilvægur grunnur

„Keppnir á borð við Pangea skipta miklu máli þar sem þær hvetja ungt fólk til að leggja rækt við raungreinar sem eru grunnur að mörgum störfum hjá EFLU,“ segir Kristín Friðgeirsdóttir. „Þess vegna var það mér mikill heiður að fá að flytja þarna erindi og ræða við krakkana.“

Keppnin, sem var fyrst haldin á Íslandi fyrir 10 árum af félaginu Horizon, er fyrir grunnskólakrakka í 8. og 9. bekk af landinu öllu. Í ár tóku alls 4.694 keppendur þátt sem gerir keppnina að þeirri langstærstu frá upphafi. Haldnar voru undankeppnir í 62 skólum um allt land og 100 hlutskörpustu nemendunum var boðið í úrslitakeppnina.

„EFLA mun halda áfram að styðja við viðburði sem þessa sem hvetja ungt fólk til menntunar. Það er skortur á tæknimenntuðu fólki og ég er viss um að í hópi þessara krakka eru framtíðarsérfræðingar sem munu þróa mikilvægar lausnir til hagsbóta fyrir allt samfélagið,“ segir Kristín. „Að lokum vil ég óska öllum þeim sem unnu til verðlauna innilega til hamingju. Þau, sem og allir aðrir þátttakendur, fá bestu kveðjur frá starfsfólki EFLU.“

Kristín Friðgeirsdóttir flytur erindi á úrslitakeppni Pangea.
EFLA - Kristín flutti erindi á úrslitakeppni Pangea