Beint í efni

Lærdómur af lofts­lags­að­gerð­um

2. október 2025

Blogg
Straws and grass in focus in the foreground, background out of focus but you can see it's a meadow in the sun

Loftslagsaðgerðir eru oft flóknar í framkvæmd þar sem samræma þarf stefnu stjórnvalda, þarfir atvinnulífsins og raunhæfa tæknilega möguleika. Þrátt fyrir metnaðarfull markmið hefur reynslan sýnt að árangur næst ekki alltaf í fyrstu tilraun. Hjá EFLU er lögð áhersla á að læra af reynslu, bæði þegar markmiðum er náð og þegar aðgerðir skila ekki tilætluðum árangri.

Söluskylda á endurnýjanlegt eldsneyti

Þegar söluskylda var innleidd á innblöndun endurnýjanlegs eldsneytis skilaði sú aðgerð góðum árangri. Árangurinn sýnir að þegar markmið eru mælanleg, ákvæði skýr og viðurlög raunhæf aukast líkurnar á því að stefna stjórnvalda nái fram að ganga. Þá er skýrt hversu mikið vel skilgreindar reglur og skýrir mælikvarðar skipta sköpum.

Styrkir til framræslu lands og hreinorkuvörubíla

Lengi voru styrkir í boði til að framræsa votlendi. Tilgangur þeirra styrkja var að byggja upp landbúnað á Íslandi. En löngu eftir að stjórnvöld hættu að reyna að byggja upp landbúnað og fóru að reyna að draga úr framleiðslu í landbúnaði, héldu þessir styrkir áfram. Þessi reynsla undirstrikar mikilvægi þess að aðgerðir myndi samræmda heild og að stjórnvöld þurfi að tryggja að mismunandi aðgerðir stangist ekki á.

Þegar styrkir til að styðja orkuskipti í flutningageiranum voru kynntir reyndist fyrirvarinn of skammur. Fyrirtæki sem þurfa að skipuleggja fjárfestingar með löngum fyrirvara gátu því illa nýtt sér úrræðið. Lærdómurinn er sá að stjórnvöld þurfa ekki aðeins að huga að innihaldi aðgerða heldur einnig framkvæmd þeirra. Aðgerðir sem taka mið af raunverulegum aðstæðum í atvinnulífinu eru líklegri til að skila árangri.

Verðlagning kolefnislosunar

Reynslan sýnir að það virkar að setja verð á losun kolefnis. Nákvæm útfærsla verðlagningarinnar skiptir þó minna máli en samhengi og aðstæður í hverju landi. Mikilvægast er að skapa hagrænan hvata sem leiðir til breytinga í hegðun og fjárfestingum.

Ef loftslagsmarkmið eiga að nást þurfum við stöðugt að spyrja okkur hvaða aðgerðir hafi skilað árangri, hvaða aðgerðir hafa ekki virkað eins og til var ætlast og hvers vegna. Með því að greina reynsluna getum við betrumbætt næstu aðgerðaáætlanir og tryggt að þær skili raunverulegum árangri.

Hjá EFLU vinnum við markvisst að því að greina árangur aðgerða, miðla lærdómi og styðja við ákvarðanatöku sem stuðlar að sjálfbærari framtíð.

EFLA - Lærdómur af loftslagsaðgerðum