Í dag mun hluti starfsfólks EFLU leggja niður störf til að sýna samstöðu með málefninu og taka þátt í viðburðum og samstöðufundum sem haldnir eru víða um land. EFLA styður þessar aðgerðir og viðurkennir mikilvægi þess að halda áfram að vinna að jafnrétti í samfélaginu og á vinnustöðum.
Þó svo þessum viðburðum sé ætlað að höfða sérstaklega til kvenna og kvára telur EFLA að umræða um jafnrétti sé sameiginlegt verkefni allra, óháð kyni. Við hvetjum því allt starfsfólk EFLU til að staldra við, ræða jafnrétti á vinnustaðnum og fagna þeim framförum sem þegar hafa orðið, en horfa jafnframt fram á veginn og ræða hvernig við viljum leggja áherslu á jafnréttismálin í framtíðinni.
