EFLA leitar að öflugum verkefnastjóra til starfa á verkefnastjórnunarsviði fyrirtækisins. Viðkomandi verður að hafa mikla þekkingu á byggingum og byggingastarfsemi og reynslu af verkefnastjórnun á því sviði.
Leitum að liðsauka í verkefnastjórnun
Ertu öflugur verkefnastjóri?
EFLA leitar að öflugum verkefnastjóra til starfa á verkefnastjórnunarsviði fyrirtækisins. Viðkomandi verður að hafa mikla þekkingu á byggingum og byggingastarfsemi og reynslu af verkefnastjórnun á því sviði. Einnig er kostur að viðkomandi hafi þekkingu af öryggismálum á vinnusvæðum. Við bjóðum spennandi starfsumhverfi og áhugaverð verkefni.
Hæfniskröfur:
- Byggingarverk- eða tæknifræðingur
- Meistaragráða er kostur
- Vottun í verkefnastjórnun er kostur
- Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Góð tölvuþekking er skilyrði
- Reynsla af verkefnastjórnun er nauðsynleg
Hefur þú gaman af skipulagi?
EFLA leitar að öflugum starfsmanni með þekkingu og reynslu af áætlanagerð. Um er að ræða tímaáætlanir í Prima Vera og kostnaðaráætlanir í framkvæmdum. Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er nauðsynleg. Við bjóðum spennandi starfsumhverfi og áhugaverð verkefni.
Hæfniskröfur:
- Verk- eða tæknifræðingur
- Meistaragráða er kostur
- Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Góð tölvuþekking er skilyrði
- Reynsla af verkefnastjórnun er nauðsynleg
FREKARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Mannauðsstjóri EFLU
Ingunn Ólafsdóttir
Netfang: job@efla.is
Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal berast inn í gegnum heimasíðu EFLU.
Umsóknarfrestur: 15.janúar 2016