Beint í efni

Málstofa um hljóðvist í leik- og grunnskólum

17. september 2009

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

Málstofa um hljóðvist í leik-og grunnskólum verður haldin föstudaginn 25.september næstkomandi.

Ólafur Daníelsson, hljóðráðgjafi á hljóðvistarsviði EFLU mun flytja erindi um rannsóknarverkefni sem unnið var í samstarfi við Reykjavíkurborg og ber heitið : Hljóðvist skólabygginga ? Samanburður á viðmiðunargildum, mæligildum og áliti notenda.

Málstofa um hljóðvist í leik- og grunnskólum

Mörg áhugaverð erindi verða flutt meðal annars um flokkun skólahúsnæða með tillit til hljóðvistar, ákvæði í reglugerðum og stöðlum, um hávaðamælingar í skólum og almennt um hávaða og heilsu í umhverfi barna.

Þá verða reynslusögur fluttar af starfsfólki leik- og grunnskóla. Nánari upplýsingar um málstofuna má nálgast á heimasíðu Vinnueftirlitsins.

EFLA - Málstofa um hljóðvist í leik- og grunnskólum