EFLA þekkingarfyrirtæki stendur fyrir málþingi á ráðstefnunni Arctic Circle 2022 sem haldin verður í Hörpu í Reykjavík dagana 13.-16. október. Málþingið kallast With the Wind in our Sails og verður haldið föstudaginn 14. október kl. 8:30-9:25 í Akrafjalli á fjórða hæð Hörpu.
Fyrirlesarar á málþinginu eru eftirfarandi:
- Kristinn A. Ormsson, raforkuverkfræðingur hjá EFLU á Íslandi.
Is the answer blowing in the wind? Finding the most favourable locations for wind power in Iceland regarding social, environmental, and technical factors.
- Stefan Wallentin, yfirmaður verkefnaþróunar hjá Wpd Í Þýskalandi.
Strong Winds in the North? Challenges of Windfarm Development, Construction, and Operation in Subarctic Lands.
- Unnur Maria Thorvaldsdottir, yfirmaður vindþróunar hjá Landsvirkjun.
Harvesting the Wind.
Fundarstýra er Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra Íslands, fyrrverandi formaður Bjartrar framtíðar og meðlimur nefndar um nýtingu vindorku á Íslandi.
Hérna má nálgast upplýsingar um málþingið og fyrirlestrana.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Arctic circle.