Beint í efni

Metfjöldi umsókna um sumarstörf hjá EFLU

10. febrúar 2026

Fréttir
kona og karl að hlæja og horfa útúr ramma

Umsóknarfrestur fyrir sumarstörf EFLU sumarið 2026 rann út fyrir stuttu og hefur áhugi aldrei verið meiri. Fyrirtækinu barst metfjöldi umsókna frá bæði nemendum og nýútskrifuðum verk- og tæknifræðingum.

Fjölbreyttar umsóknir

Umsóknir bárust víðs vegar að af landinu sem endurspeglar sterka stöðu EFLU meðal ungs fagfólks sem sér fyrirtækið sem eftirsóttan vinnustað. Umsækjendur koma úr fjölbreyttum greinum, meðal annars byggingarverkfræði, umhverfis- og orkutækni, skipulagi, samgöngum og tæknilegri ráðgjöf.

Sumarstörf eru frábær vettvangur fyrir fólk til að öðlast reynslu í faginu og hefur fjöldi núverandi starfsfólks EFLU upphaflega tekið sín fyrstu skref hjá fyrirtækinu í sumarstarfi. Sumarstörfin leggja áherslu á að starfsfólk taki þátt í raunverulegum verkefnum, upplifi faglega handleiðslu og virka þátttöku í þverfaglegum teymum. Þau fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem tengjast innviðum, sjálfbærni og þróun samfélagsins.

Starfsfólk EFLU þakkar öllum umsækjendum fyrir mikinn áhuga og góða þátttöku. Yfirferð umsókna stendur nú yfir og verður haft samband við umsækjendur sem komast áfram í næstu skref. Við yfirferð umsókna er horft til flestra verkfræðinámsgreina sem kenndar eru á Íslandi og á Norðurlöndunum auk annarra fræðigreina sem nýtast starfsemi EFLU á mismunandi hátt. Öllum umsóknum verður svarað.

EFLA - Metfjöldi umsókna um sumarstörf hjá EFLU