Níu verkefni fengu styrki úr haustúthlutun Samfélagssjóðs EFLU en tilkynnt var um úthlutunina fyrir stuttu. Alls bárust 212 umsóknir í þessari úthlutun, sem undirstrikar þann mikla áhuga og þörf sem er fyrir stuðning við uppbyggjandi verkefni í samfélaginu.
Fjölbreytt verkefni
Samfélagssjóður EFLU var stofnaður árið 2013 í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins. Markmið sjóðsins er að styðja við verðug og jákvæð verkefni í samfélaginu og láta gott af sér leiða. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, að vori og hausti.
Styrkirnir ná til fjölbreyttra málaflokka, meðal annars íþrótta- og æskulýðsmála, góðgerðar- og félagsmála, menntunar, rannsókna og þróunar, menningar, lista og umhverfismála. Líkt og áður var sérstök áhersla lögð á góðgerðarmál í aðdraganda jóla.
Styrkþegar haustúthlutunar 2025
Matargjafir Akureyri og nágrenni hlýtur styrk fyrir verkefni sem veitir fjölskyldum á Akureyri og í nágrenni skjótan og virðingarfullan stuðning fyrir jólin í formi gjafakorta, matargjafa og annarra nauðsynja. Félagið hefur starfað í rúm ellefu ár og aðstoðaði yfir 200 fjölskyldur árið 2024.
Púl og Basl fær styrk til kaupa á pool- og borðtennisborði fyrir eldri borgara í Norðurbrún 1 í Reykjavík. Markmiðið er að auka félagslega virkni, draga úr einangrun og stuðla að betri líðan eldri borgara.
Jólasjóður Fjarðabyggðar hlýtur styrk fyrir samstarfsverkefni Rauða krossins, kirkna og félagasamtaka og veitir fjölskyldum fjárhagsaðstoð fyrir jólin í formi inneignarkorta í matvöruverslunum.
Blakdeild Þróttar Neskaupstað fær styrk til endurnýjunar á blakboltum fyrir alla flokka félagsins. Endurnýjunin mun bæta aðstöðu iðkenda, allt frá yngstu iðkendum upp í meistaraflokk.
Verðandi endurnýtingarmiðstöð ehf. hlýtur styrk til verkefnisins Karlar í skúrnum á Hofsósi. Verkefnið skapar vettvang fyrir karla til að hittast, vinna að handverki og efla félagsleg tengsl með það að markmiði að draga úr einangrun.
Gjóla ehf. fær styrk til hönnunar og smíði upplýsingaskiltis við lýsistankana á Raufarhöfn, sem eru að breytast í listatanka. Skiltið mun kynna viðburði og sýningar og styrkja menningarstarf á svæðinu.
Félag Horizon hlýtur styrk til framkvæmdar Pangea-stærðfræðikeppninnar 2026, sem er ætluð nemendum í 8. og 9. bekk um land allt. Markmiðið er að efla áhuga á stærðfræði og tryggja jöfn tækifæri óháð búsetu.
Anh Ngoc Bui fær styrk til verkefnisins STEM fyrir framtíðina, sem felst í gjaldfrjálsum STEM-smiðjum fyrir börn á yngsta og miðstigi grunnskóla í samstarfi við skóla og bókasöfn.
Landvernd hlýtur styrk til Hálendishátíðar, vitundarvakningarviðburðar um hálendi Íslands í samstarfi við FlyOver Iceland. Hátíðin sameinar fræðslu, listir og tónlist með áherslu á náttúruvernd og tengsl samfélagsins við ósnortna náttúru.
Starfsfólk EFLU óskar öllum styrkþegum innilega til hamingju. Næsti umsóknarfrestur í Samfélagssjóð EFLU er 15. apríl.
