Ný útgáfa skýrslu um raforkuverð á Íslandi

12.06.2025

Fréttir
Forsíða skýrslu.

Orkumálaráðgjöf EFLU hefur gefið út nýja og ítarlega útgáfu af skýrslunni Raforkuverð á Íslandi, þar sem teknar eru saman upplýsingar um þróun raforkuverðs frá janúar 2005 til febrúar 2025. Skýrslan byggir á áratugalangri gagnasöfnun EFLU og veitir yfirgripsmikla innsýn í verðmyndun raforku til heimila og fyrirtækja.

Nýjungar og samanburður við Evrópu

Í skýrslunni er farið ítarlega yfir verðþætti á borð við flutning, dreifingu, söluverð og opinber gjöld. Einnig er fjallað um heildsölumarkað raforku, flutningstöp, jöfnunarorkumarkað og upprunaábyrgðir. Skoðuð eru verð til heimila eftir gjaldskrársvæðum dreifiveitna, sem og verð til fyrirtækja. Einnig eru skoðuð verð erlendis, einkum í Evrópu, og þau borin saman við verð á Íslandi.

Nýjungar í þessari útgáfu eru meðal annars umfjöllun um kauphöll raforku, verð til stórnotenda, raforkuverð í Kanada og framtíðarhorfur á raforkumarkaði. Skýrslan er einnig sú fyrsta sinnar tegundar til að birta helstu gögn reglulega á vefnum.

Hægt er að skoða gögnin með því að smella hér.

Áhugasamir geta haft samband í gegnum netfangið orkuverd@efla.is fyrir frekari upplýsingar.