Beint í efni

Nýtt deili­skipu­lag Stórhóls á Húsavík

10. júlí 2026

Fréttir
overview of Husavik

Sveitarstjórn Norðurþings hefur samþykkt nýtt deiliskipulag EFLU fyrir Stórhól Hjarðarholt á Húsavík. Skipulagið er heildarendurskoðun rótgróins hverfis með nýjum skilmálum fyrir eldri byggð og græn svæði og heimildir til hóflegrar þéttingar á forsendum þeirrar byggðar sem fyrir er. 

Markmið skipulagsins er að nýta land og innviði sveitarfélagsins betur og skapa verðmæt tækifæri til uppbyggingar á vannýttum svæðum innan núverandi íbúðarbyggðar.  

Veittar eru heimildir fyrir fjölgun íbúða í eldri húsum og byggingu allt að 50 nýrra íbúða í fjölbýli, raðhúsum og einbýlum á nýjum lóðum. Nýbyggingar taka mið af eldri byggð og eru í áþekkum mælikvarða og eldri hús. Lögð var áhersla á að styrkja göngu- og hjólatengingar, efla leik- og útivistarsvæði og varðveita staðaranda hverfisins.  

overview of Stórhóll

Deiliskipulag Stórhóls er dæmi um hvernig sveitarfélög geta nýtt land og innviði betur, og stutt við sjálfbæran vöxt byggðarlaga. Þegar innviðir s.s. gatnakerfi, þjónusta og útivistarsvæði eru til staðar felast bæði umhverfislegir og fjárhagslegir kostir í því að byggja bæi inn á við frekar en að brjóta nýtt land undir byggð. Mikilvægt er fyrir sveitarfélög að eiga ávallt góðar byggingarlóðir undir fjölbreyttar íbúðir til úthlutunar. Þannig getur sveitarfélagið lagt sitt af mörkum til að bregðast við húsnæðisþörf, hvatt til skynsamlegrar uppbyggingar og dregið úr þörf fyrir kostnaðarsama uppbyggingu nýrra gatna- og veitukerfa. 

digital photo of stórhóll

Þverfagleg ráðgjöf

Deiliskipulagið við Stórhól Hjarðarholt var unnið af starfsfólki EFLU á Norðurlandi og í Reykjavík í nánu samstarfi við skipulagsyfirvöld í Norðurþingi. EFLA býr yfir fjölda sérfræðinga um allt land sem búa yfir víðtækri reynslu í skipulags- og byggingarmálum og geta tekið að sér hvers kyns skipulagsverkefni, allt frá stefnumótun og gerð aðal- og deiliskipulags til sérfræðiráðgjafar og tæknilegrar útfærslu. Þar má nefna húsakannanir, samgöngumat, hljóðvistar-, vind- og dagsljósgreiningar, gatna- og lagnahönnun, landslagsráðgjöf, gerð lóðarblaða og fjölbreytta hönnun og ráðgjöf sem styður sjálfbæra þróun og vandaða uppbyggingu sveitarfélaga. 

Sjálfbær þróun með virðingu fyrir eldri byggð

Víða um land eru tækifæri til að styrkja eldri byggð með markvissri endurskoðun skipulagsáætlana. Með því að greina sóknarfæri innan eldri hverfa og nýta betur þá innviði sem þegar eru til staðar er hægt að heimila breytta notkun núverandi húsnæðis, skilgreina nýjar byggingarlóðir, fjölga húsnæðiskostum og bæta innviði fyrir gangandi og hjólandi.  Þegar rétt er staðið að málum geta uppfærðar skipulagsheimildir og hæfileg þétting stuðlað að sjálfbærri þróun, styrkt staðaranda, eflt byggðarlög og aukið lífsgæði íbúa. 

Þjónusta í skipulagsmálum
Nýtt deiliskipulag Stórhóls á Húsavík