Beint í efni

Opið er fyrir umsóknir í Sam­fé­lags­sjóð EFLU

21. september 2026

Fréttir
Trjágrein með hvítum blómum að blómstra

Auglýst er eftir umsóknum í samfélagssjóð EFLU og er umsóknarfrestur til og með 15. október næstkomandi. 

Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til jákvæðra og uppbyggjandi verkefna sem nýtast samfélaginu. Markmið sjóðsins er að styðja við framtak einstaklinga og hópa, sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.  

Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og hafa fjölmörg eftirtektarverð verkefni fengið fjárstyrk og öðlast þannig betra brautargengi. Hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um sjóðinn og verkefni sem hafa fengið styrk á vefsíðu EFLU. 

Samfélagssjóð EFLU er ætlað að styðja verkefni á eftirtöldum sviðum: 

  • Íþrótta- og æskulýðsmál 
  • Góðgerða- og félagsmál
  • Menntamál Rannsóknir og þróun
  • Menning, hönnun og listir
  • Umhverfismál 

Umsóknir þurfa að berast í gegnum sérstakt umsóknarform á heimasíðu EFLU í síðasta lagi 15. október og verður öllum umsóknum svarað. 

EFLA - Opið er fyrir umsóknir í Samfélagssjóð EFLU