Farið var yfir stöðu orkumarkaða á Íslandi og erlendis á opnum morgunverðarfundi Landsvirkjunar þann 6. nóvember. Einnig fóru fram pallborðsumræður og tók sviðsstjóri orkusviðs EFLU þátt þeim.
Orkumál rædd á morgunverðarfundi
Yfirskrift fundarins var Orkumarkaðir í mótun: Viðskipti og verðmyndun og var tilgangurinn að dýpka umræðuna um viðskipti með raforku. Hjá EFLU er fylgst náið með orkuverði og orkunotkun á Íslandi og hefur tvívegis gefið út skýrslu um þróun orkuverðs.
Jón Vilhjálmsson, sviðsstjóri orkusviðs hjá EFLU, fer fyrir málaflokknum og tók hann þátt í líflegum pallborðsumræðum á fundinum. Þar sagði Jón m.a. „Samkeppni á íslenskum smásölumarkaði fyrir fyrirtæki hefur farið mjög vaxandi síðan opnað var fyrir frjálsa verslun á rafmagni hér á landi árið 2003.“
Umhverfisvæn orka
Fjölmörg áhugaverð erindi um raforkumarkaði fóru fram á fundinum og samanburður á íslenskum og erlendum mörkuðum ræddur. Munurinn fælist fyrst og fremst í uppruna orkugjafans en rafmagn í Evrópu er víða unnið úr kolum og gasi. Þannig væri sóknarfæri fyrir Ísland að framleiða umhverfisvæna orku þar sem eftirspurn eftir grænni valkostum. Einnig kom fram í máli Jóns að nú er yfirleitt gerð sú krafa þegar boðin er út raforka að það fylgi með grænt skírteini.
Raforkumarkaðurinn á Íslandi
Fróðlegt viðtal birtist við Jón Vilhjálmsson í Viðskiptablaðinu þann 8. nóvember þar sem umræðuefnið var raforkumarkaðurinn á Íslandi. Meðal þess sem fjallað var um er samkeppnin á fyrirtækjahluta almenna raforkumarkaðarins en sala raforku á Íslandi skiptist í tvo aðskilda markaði, stórnotendur og smásölu til almennra nota.