Beint í efni

Óskað eftir umsóknum í Sam­fé­lags­sjóð EFLU

11. apríl 2026

Fréttir
Horft yfir Reykjavík

EFLA óskar eftir umsóknum í Samfélagssjóð fyrirtækisins en sjóðurinn veitir styrki til samfélagslegra og uppbyggjandi verkefna sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Fjölbreytt verkefni

Samfélagssjóður EFLU hefur starfað frá árinu 2013 og hefur það markmið að styðja við framtak einstaklinga og hópa um allt land. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og eru umsóknir metnar út frá markmiðum sjóðsins, gildum EFLU og áherslum valnefndar hverju sinni.

Styrkir úr Samfélagssjóði EFLU hafa á undanförnum árum runnið til fjölbreyttra verkefna á sviði menningar, félagsmála, íþrótta og fræðslu. Verkefnin eiga það sameiginlegt að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt og samfélagið í heild.

Styrkumsóknir þurfa að berast í gegnum vefsíðu EFLU og er fólk hvatt til að kynna sér sjóðinn og reglur hans. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl.

EFLA - Óskað eftir umsóknum í Samfélagssjóð EFLU