EFLA leitar að öflugum starfsmanni á rekstarsvið fyrirtækisins.
Rekstrarsvið EFLU leitar að öflugum bókara
Bókari í reikningshald, verkbókhald og reikningagerð.
Starfið felur í sér vinnu við fjárhagsbókhald, reikningagerð, verkbókhald, afstemmingar og önnur störf er snúa að bókhaldi. Starfið krefst nákvæmni og sjálfstæðra vinnubragða sem og hæfni til að starfa í hóp.
Hæfniskröfur:
• Viðurkenndur bókari og/eða hagnýt reynsla af bókhaldsstörfum
• Haldgóð þekking á fjárhagsbókhaldi
• Góð þekking í Navision
• Góð þekking í Microsoft Excel
• Nákvæm vinnubrögð og vandvirkni
• Þjónustulipurð og samstarfshæfni
Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum versíðu EFLU fyrir 12. maí næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál