EFLA auglýsir eftir umsóknum í samfélagssjóð EFLU og er umsóknarfrestur til og með 15. apríl næstkomandi. Markmið sjóðsins er að styðja við framtak einstaklinga og hópa, sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
Samfélagssjóður EFLU
Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til jákvæðra og uppbyggjandi verkefna sem nýtast samfélaginu og hafa mörg eftirtektarverð verkefni hafa fengið fjárstyrk úr sjóðnum.
Samfélagssjóðnum er ætlað að styrkja við verkefni á eftirtöldum sviðum:
- Menntamál
- Menning og listir
- Íþrótta- og æskulýðsmál
- Umhverfismál
- Rannsóknir
- Góðgerðar- og félagsmál
Umsóknir í sjóðinn skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarform á vef EFLU fyrir
15. apríl 2021 og verður þeim öllum svarað.
Nánar um samfélagssjóð EFLU.