Samfélagssjóður EFLU hefur veitt styrki til sjö uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu.
Markmið með styrkjum úr Samfélagssjóðnum er að styðja við framtak einstaklinga og hópa sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
Umsóknir voru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum nefndarinnar.
Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni
- Handverkshátíð í Eyjafjarðarsveit
Styrkur til að standa straum af handverkshátíð og bændamarkað sumarið 2021
- Sambýlið Laugaskjól
Styrkur til að koma upp gróðri og plöntum fyrir gróðurkassa
- Klettabær
Styrkur til að koma upp rafíþróttaaðstöðu fyrir þjónustunotendur í Klettabæ
- Pílukastfélag Fjarðabyggðar
Styrkur til að koma upp nýrri aðstöðu fyrir pílukast sem nýtist samfélaginu
- Göngufélag Suðurfjarða
Styrkur til að setja upp skilti með æfingum á gönguleið ofan við Fáskrúðsfjörð og innan bæjarins
- MEMA Nýsköpunarhraðall
Styrkur sem nýtist sem verðlaunafé í nýsköpunarsamkeppni milli framhaldsskóla
- Blái herinn
Styrkur sem nýtist hreinsunarstarfi Bláa hersins á Reykjanesi
Við óskum öllum styrkhöfum hjartanlega til hamingju með styrkinn við verkefni sín. Jafnframt þökkum við öllum sem sendu umsókn um styrk í Samfélagssjóð EFLU og óskum þeim góðs gengis.
Myndir af styrkhöfum - Smelltu á örvarnar til að skoða
- 1 / 6
Handverkshátíð í Eyjafjarðarsveit. Til vinstri. María Hólmgrímsdóttir, verkefnastjóri Matarstígs Helga magra og Kristín Anna Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Handverkshátíðarinnar og hönnuður hjá N4
- 2 / 6
MEMA nýsköpunarhraðall. Bryndís Steina, Þóra og Hafliði.
- 3 / 6
Blái herinn við hreinsun á Merkines þann 8 maí 2021.
- 4 / 6
Lilja Ingvarsdóttir (til vinstri) og Ása Lind Þorgeirsdóttir (til hægri) frá Laugaskjóli.
- 5 / 6
Frá vinstri, Guðjón Þ. Gíslason, annar eiganda og framkvæmdastjóri Klettabæjar, Andri Tómas Gunnarsson deildarstjóri náms- og starfsseturs Klettabæjar og Hólmar Freyr Sigfússon, verkefnasstjóri.
- 6 / 6
Stjórn Göngufélags Suðurfjarða