Fimmtudaginn 23. ágúst var vígð ný göngubrú við Drottningarbraut á Akureyri og hlaut hún nafnið Samkomubrú. Göngubrúin setur sterkan svip á bæinn og verður án efa eitt af kennileitum bæjarins.
Brúin, sem er 86 m löng og 4 m breið, er hluti af gönguleiðinni eftir sjávarsíðunni við Pollinn. Göngubrúin er yfirbyggð að hluta og því er hægt að standa undir þaki í hvaða veðri sem er og njóta útsýnisins yfir Pollinn.
Harðviður og lerki
Göngubrúin var hönnuð með útlit harðviðarbryggju í huga og er byggð á 50 staurum. Handrið og yfirbygging eru að hluta til úr harðviði og lerki og eru tangir og dekkbitar klæddir með harðviðarplönkum.
Burðarþolshönnun
Hönnun brúarinnar var í höndum Teiknistofu Norðurlands og sá EFLA um burðarþolsútreikninga, hönnunar- og útboðsteikningar, útboðs- og verklýsingar og ráðgjöf vegna framkvæmdanna.
EFLA óskar Akureyringum til hamingju með nýja og glæsilega Samkomubrú.
- 1 / 2
Samkomubrú við Drottningargötu á Akureyri.
- 2 / 2
Frá opnun göngubrúarinnar.