Ólafur Ágúst Ingason, sviðsstjóri bygginga hjá EFLU og stjórnarmaður í Félagi ráðgjafarverkfræðinga (FRV), flutti erindi á fundi í Húsi atvinnulífsins í vikunni. Fundurinn, sem fjallaði um samræmda aðferðarfræði við gerð kostnaðaráætlana, var vel sóttur af fagfólki úr mannvirkjaiðnaðinum og opinberum stofnunum.
Úrbætur og ný nálgun
Í erindi sínu kynnti Ólafur Ágúst aðferðafræðina sem þróuð hefur verið í samstarfi FRV, Samtaka arkitektastofa og Mannvirkis, félags verktaka. Hann fór yfir bakgrunn verkefnisins, þau vandamál sem kallað hafa á úrbætur og hvernig ný nálgun við gerð kostnaðaráætlana getur stuðlað að aukinni gæðahugsun og traustari samskiptum milli aðila í framkvæmdum. Þá svaraði hann spurningum fundargesta og tók þátt í umræðum um næstu skref í innleiðingu aðferðarinnar.
Aðferðirnar byggja á staðfærðum skjölum frá AACE (Association for the Advancement of Cost Engineering) og eru nú aðgengilegar á vefsíðu sem Samtök iðnaðarins, FRV, Mannvirki og Samark halda úti. Þar má finna flokkunarkerfi kostnaðaráætlana, forsenduskjöl og hugtakaskrá sem stuðla að samræmdum skilningi og betri framkvæmd áætlunargerðar.
Upptöku frá fundinum má finna hér að neðan.
Upptöku frá fundinum má finna hér að neðan.
