Samstarfssamningur undirritaður

11.04.2019

Fréttir
A map highlighting geographical area with road connections indicated

Áform eru um uppbyggingu stórskipahafnar við Finnafjörð á Langanesi.

Fulltrúar Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps, þýska hafnarfélagsins bremenports og verkfræðistofunnar EFLU undirrituðu í dag samstarfssamninga um þróun og uppbyggingu hafnarstarfsemi í Finnafirði.

Samstarfssamningur undirritaður

Við undirritunina var stofnað þróunarfélagið FFPD sem mun vinna að því að afla sérleyfishafa til að hefja starfsemi innan svæðisins. Um er að ræða um 1.300 ha svæði, sem hýst getur margvíslega starfsemi. Við stofnun mun Bremenports eiga 66% hlut í félaginu. Aðrir eigendur verða EFLA með 26% og sveitarfélögin Vopnafjörður og Langanesbyggð saman með 8%. Viðræður eru í gangi um aðkomu erlends fjárfestingarsjóðs að félaginu síðar á árinu.

Markmið félagsins er að vinna að uppbyggingu alþjóðlegrar stórskipahafnar og iðnaðar- og þjónustusvæðis í takt við ákall samtímans um sjálfbærni. Svæðið tengir saman Asíu við austurströnd Bandaríkjanna og Evrópu. Staðsetning hafnarinnar í Finnafirði mun stytta alþjóðlegar sigilingaleiðir verulega og í kjölfarið minnka útblástur í flutningum.

Þór Steinarsson, sveitarstjóri Vopnafjarðar: „Þessi undirritun er mikið fagnaðarefni enda verulegur áfangi í að þróa þetta mikilvæga verkefni áfram. Hafnarstarfsemin í Finnafirði mun styrkja stöðu sveitarfélaganna á svæðinu verulega og skjóta styrkari stoðum undir atvinnulífið á öllu Norðausturlandi.“

Elías Pétursson, sveitarstjóri Langanesbyggðar: „Langanesbyggð hefur um langa hríð stefnt að þeim áfanga sem náðist hér í dag. Höfnin mun efla byggðina hér á svæðinu og fjölga tækifærum á Norður- og Austurlandi enda má segja að með höfninni myndist hér ný gátt út í heiminn. Þá skiptir miklu máli að sveitarfélögin eru hluti af eigendahópi hins nýja þróunarfélags og sem er enn mikilvægara, verða eini eigandi þess fyrirtækis sem eiga mun og reka höfnina og athafnasvæðið. Einnig er vert að taka fram að með þessum áfanga og stofnun fyrirtækja í framhaldinu þá myndast loks alvöru vettvangur til markviss og góðs samtals við landeigendur í Finnafirði.“

Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri Viðskiptaþróunar hjá EFLU: „Undirbúningur að þessum áfanga hefur staðið lengi yfir enda er stórskipahöfnin í Finnafirði risavaxið verkefni og mun uppbygging hennar standa yfir í áratugi. Við rannsóknir okkar á svæðinu á síðustu árum hefur komið í ljós að aðstæður til uppbyggingar hafnar eru einstakar á landsvísu og þó víðar væri leitað við Norður Atlantshafið. Ég vona að þetta verkefni auki velferð svæðisins í heild og þá einnig landeigenda við Finnafjörð.“

Robert Howe, forstjóri Bremenports: „Staðsetning hafnarinnar í Finnafirði mun breyta alþjóðasiglingum til frambúðar og getur leitt til verulegs umhverfisábáta þar sem þetta mun minnka útblástur. Við leggjum mikið upp úr umhverfismálum og mun höfnin byggjast upp á forsendum greenport aðferðafræðinnar. Við erum virkilega spennt fyrir framhaldinu og ánægð að hafa náð þessum áfanga í dag með undirritun samstarfssamninganna.“

Frekari upplýsingar veita Þór Steinarsson í síma 860-8481, Elías Pétursson í síma 892-0989 og Hafsteinn Helgason í síma 665-6102.

Five men in business attire sitting at a long table outdoors

Forsvarsmenn þróunarfélagsins FFPD undirrituðu samstarfssamning þann 11. apríl 2019.