Beint í efni

Sendiherra Úkraínu í Noregi heimsótti EFLU

22. desember 2025

Fréttir
Fólk á uppstilltri mynd.

Í liðinni viku tók EFLA á móti Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu í Noregi og Oksana Gaiduchok, viðskiptafulltrúa og staðgengli úkraínska sendiherrans, á skrifstofu EFLU í Noregi. Með í för voru Högni Kristjánsson sendiherra Íslands í Noregi og Heba Líf Jónsdóttir viðskiptafulltrúi sendiráðsins.

Markmið heimsóknarinnar var að fræðast um aðkomu EFLU að uppbyggingu nýrra orkukosta og verkefni tengd orkuflutningi. Úkraína stendur frammi fyrir miklum áskorunum í innviðamálum og leitar stöðugt leiða til að styrkja orkukerfi landsins.

Frá EFLU tóku á móti gestunum Ragnar Jónsson, framkvæmdastjóri EFLU í Noregi, Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU á Íslandi, Jónína Björk Vilhjálmsdóttir, sviðsstjóri þróunar, Guðrún Hulda Eyþórsdóttir, mannauðsstjóri í Noregi, auk Eivind Aase og Diarmid Loudon sem eru stjórnendur hjá EFLU í Noregi.

Heimsóknin var ánægjuleg og skapaði tækifæri til að ræða samstarfsmöguleika og miðla þekkingu á sviði orkuflutnings og innviða sem starfsfólk EFLU hefur mikla þekkingu á.

EFLA - Sendiherra Úkraínu í Noregi heimsótti EFLU