Sérfræðingar EFLU munu flytja tvö erindi og taka þátt í pallborðsumræðu á fagþingi hita-, vatns-, og fráveitna sem er haldið af Samorku í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ dagana 7.-8. maí.
Fagþingið er mikilvægur tengsla- og fræðsluvettvangur fyrir fólk í orku- og veitugeiranum. Samtímis verður einnig vöru- og þjónustusýning og Fagkeppni Samorku þar sem lið keppa í fimm mismunandi keppnisgreinum tengdum hita-, vatns- og fráveitu.
Ástandsgreining og kostnaðarmat
Margrét Ásta Bjarnadóttir, sérfræðingur í vatnsmiðlum, verður með erindi sem kallast Ný nálgun á ástandsgreiningu fráveitulagna á málstofunni Fráveitan í þróun; innviðir, greining og blágrænar lausnir. Málstofan verður í Stapa og hefst kl. 9:00 föstudaginn 8. maí.
Guðmundur Sigfinnsson, sérfræðingur í orkumálaráðgjöf og endurnýjanlegri orku, verður með erindi sem kallast Kostnaðarmat á framkvæmdum vegna fráveitutilskipunar ESB á lokamálstofu þingsins. Sú málstofa verður í Stapa föstudaginn 8. maí og hefst kl. 14:15.
Þá verður Reynir Sævarsson hluti af pallborðsumræðum eftir lokamálstofuna þar sem Guðmundur flytur sitt erindi. Í pallborðsumræðunum verður rætt almennt um fráveitumál á Íslandi og hvernig nýju regluverki mun mögulega fylgja mikill kostnaður við hreinsun frárennslis.
Sérfræðingar EFLU hafa mikla reynslu á þessu sviði og hafa unnið mörg verkefni fyrir ríki og sveitarfélög í tengslum við þennan málaflokk.
