Úthlutun styrkja úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar fór fram í mars og fengu sextán verkefni frá EFLU styrk. Alls bárust sjóðnum 98 umsóknir og sótt var um samtals 326,1 milljón króna.
Stór hluti verkefna
63 verkefni hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni, þar af 20 verkefni frá verkfræðistofum. Sérfræðingar EFLU koma þannig að meirihluta þeirra verkefna verkfræðistofa sem fengu styrk úr sjóðnum, sem okkur þykir sérstakt gleðiefni.
Rannsóknasjóður Vegagerðarinnar styður við nýsköpun og þróunarstarf á fagsviðum stofnunarinnar. Veittir eru styrkir í fjórum flokkum: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Eftirfarandi verkefni EFLU hlutu styrki
Mannvirki
- Stauraundirstöður fyrir brýr
Verkefnastjóri: Andri Gunnarsson
- Forsteyptar bríkureiningar
Verkefnastjóri: Ólafur Davíð Friðriksson
- Þolhönnun á stálþiljum við íslenskar aðstæður
Verkefnastjóri: EFLA verkfræðistofa
Umferð
- Lækkaður hámarkshraði að vetrarlagi
Verkefnastjóri: Berglind Hallgrímsdóttir
- Notkun CNOSSOS við útreikninga á umferðarhávaða. Uppfærsla á inntaksgögnum til að endurspegla íslenskar aðstæður betur.
Verkefnastjóri: Margrét Aðalsteinsdóttir
- Notkun vindskerma fyrir bætt umferðaröryggi og vindþægindi í samgöngum
Verkefnastjóri: Nína Gall Jörgensen
- Skammtímaspár úrkomu með veðursjám
Verkefnastjóri: EFLA
- Útreikningar á skafrenningi og skaflamyndun
Verkefnastjóri: EFLA
- Vatnshlot og vegaframkvæmdir
Verkefnastjóri: Anna Rut Arnardóttir
Umhverfi
- Algilt sjálfbærnimat á íslenskum vegaframkvæmdum
Verkefnastjóri: Alexandra Kjeld
- Göngubrýr og undirgöng markmiðasetning fyrir kolefnisspor
Verkefnastjóri: Magnús Arason
- Innleiðing umhverfiskrafa í framkvæmdum
Verkefnastjóri: Ása Rut Benediktsdóttir
- Nýting á endurnýtanlegum rafhlöðum úr rafbílum
Verkefnastjóri: Reynir Valdimarsson
Samfélag
- Ferðavenjur framhaldsskólanema á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnastjóri: Daði Baldur Ottósson
- Sérlög um opinberar samgönguframkvæmdir
Verkefnastjóri: Ragnhildur Gunnarsdóttir
- Virði tíma í umferð, íslenskt mat og áhrif á samgöngulíkön
Verkefnastjóri: Albert Skarphéðinsson
Nánari upplýsingar um verkefnin
Verkefnastjóri: Andri Gunnarsson
Verkefnið hófst árið 2021 með styrk frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar og síðan fékkst framhaldsstyrkur árin 2022 og 2024 til að halda áfram með verkefnið.
Nú er sótt um styrk fyrir fjórða áfanga verkefnisins. Í þessum áfanga verður skoðað að framkvæma CPT-prófanir við Djúpá sem ná niður á meira dýpi en áður hefur verið gert sem hægt er að bera saman við PDA-mælingarnar úr þriðja áfanga. Niðurstöðurnar verða bornar saman við mat á viðnámsstuðli sem er fall af skriðhorni, virkri spennu og lengd staura sem fjallað var um í þriðju áfangaskýrslu verkefnisins. Markmiðið með þessari vinnu er að leggja til umbætur á núverandi hönnunaraðferðum fyrir staura í íslenskum viðnámsjarðefnum og staðfesta að reikniaðferð sem byggir á virkri spennugreiningu (e. effective stress analysis) sé hagstæð viðbót við þær aðferðir sem notaðar hafa verið hérlendis við mat á brotþoli viðnámsstaura í sendnum jarðvegi. Þá mun fjórði áfangi fela í sér samanburð á fyrirliggjandi gögnum úr höggborunum og áðurnefndri virkri spennugreiningu með því að nota niðurstöður úr fyrri verkefnum þar sem safnað var saman gögnum um sambandið á milli höggborunar og brotþols staura. Einnig verður unnin greining á viðnámsstuðli staura í viðnámsjarðvegi með einingaaðferð í ítarlegu reiknilíkani (e. finite element model). Að lokum verður fjallað um jarðskjálftahönnun staura við íslenskar aðstæður með áherslu á að skoða sveiflufræðilega hegðun brúa sem eru grundaðar á staura. Markmiðið með þessu er að skapa yfirlit yfir helstu áhættuþætti í hönnun stauraundirstaða á jarðskjálftasvæðum, þ.m.t. víxlverkun stífni staurastæða og jarðvegs (e. soil structure interaction), stífni í jarðvegi sem fall af varanleika álags og streituástandi sem og sveiflufræðileg hegðun brúar á staurastæðu sem eina heild.
Verkefnastjóri: Ólafur Davíð Friðriksson
Þegar verkefni eru fjármögnuð er mikil áhersla lögð á kostnaðarhagkvæmni. Þannig eru dýr viðhaldsverkefni ekki jafn spennandi þegar kemur að fjárveitingu, þau eru hins vegar mikilvæg til að varðveita innviði landsins. Við eftirlit á brúm eru kantbitar (bríkur) þeirra oft skemmdir, enda eru þeir mjög útsettir fyrir veðrun og öðru álagi.
Þegar steyptir kantbitar eru orðnir það skemmdir að ekki er hægt að fara í yfirborðsviðgerðir til að lagfæra þá svo tryggja megi öryggi vegfarenda, þarf að skipta um þá. Þegar litið er á 100 ára hönnunarlíftíma brúarmannvirkja verða kantbitar gjarnan fyrir skemmdum löngu áður en þessum líftíma er náð. Einnig hafa kröfur aukist og eru eldri brýr ekki byggðar með þetta í huga. Oft þarf að skipta um skemmda kantbita þó að heildarástand mannvirkisins teljist gott að öðru leyti.
Útskipti á kantbita fylgir mikið ferli þar sem hanna þarf nýjan og síðan hefjast framkvæmdir með innborun járna, uppsetningu móta og steypuvinnu. Þessar framkvæmdir taka oft langan tíma sem fer auðvitað eftir stærð og lengd mannvirkisins og því fylgir mikill óbeinn samfélagslegur kostnaður við lokanir og tafir.
Með því að hanna og forsteypa kantbita og koma þeim svo fyrir á brúm væri þannig hægt að spara mikinn tíma við uppsetningu þeirra og stytta þannig framkvæmdatímann.
Rannsóknarskýrsla úr fyrri áfanga er langt komin og eru skil áætluð í febrúar 2026.
Verkefnastjóri: EFLA verkfræðistofa
Tilgangur verkefnisins er að fara yfir þolhönnun hafnarbakka á Íslandi. Áhersla er lögð á að bera saman hönnunarálag á stálþil samkvæmt gildandi hönnunarstöðlum (þ.e. fræðileg gildi)[1],[2] og raunverulegt álag m.t.t. byggingaraðferðar og íslenskra aðstæðna. Leitast verður við að leggja mat á eiginlegt álag og þar með öryggi í þolhönnun á stálþiljum hérlendis og hvort stuðla megi að betri nýtingu eða endingu á byggingarefnum með bættum hönnunaraðferðum. Þá er sérstaklega horft til þess að skoða hvernig jarðþrýstingur á stálþil þróast við niðurrekstur í sprengdan skurð eða náttúrulegan sandbotn, við bakfyllingu og stögun, frágang á kantbitum og þekju, dýpkun og að lokum þegar hafnarbakkinn er tekinn í notkun.
Verkefnastjóri: Berglind Hallgrímsdóttir
Í þessu verkefni er markmiðið að skoða leiðbeinandi hámarkshraða og hvort æskilegt sé að útvíkka notkun þeirra, til dæmis til að lækka hraða á ákveðnum vegköflum að vetrarlagi.
Verkefnastjóri: Margrét Aðalsteinsdóttir
Tilgangur verkefnisins er að meta þörfina á uppfærslu inntaksgagna sem notuð eru við útreikninga á umferðarhávaða á Íslandi. Verkefnið felur í sér greiningu á tíðnirófi ökutækja og skoða þau í samhengi við þær reikniaðferðir sem í dag eru tiltækar og samþykktar til notkunar á Íslandi, þ.e. CNOSSOS-EU, Nord96 og Nord2000. Tilgangur verkefnisins er jafnframt að draga úr óvissu í hávaðamati umferðar, þ.e. með því að minnka mismun í útreikningum sem gerðir eru fyrir sama svæði með mismunandi forsendum. Þá verður þörfin metin með uppfærðum inntaksgögnum ökutækjaflokka og umferðardreifingu yfir sólarhringinn.
Útreikningar verða framkvæmdir í formi næmnigreiningar fyrir mismunandi samsetningu ökutækjaflokka, veggerða og dreifingu umferðar yfir sólarhringinn með reikniaðferðinni CNOSSOS-EU. Æskilegt er að öðlast meiri þekkingu á CNOSSOS-EU og skilja áhrif þeirra valkosta sem ráðgjafar hafa við val á inntaksgögnum, svo sem ökutækjaflokka, veggerða og umferðardreifingu. Niðurstöðurnar munu nýtast sem grundvöllur ítarlegrar leiðbeiningar fyrir ráðgjafa.
Verkefnastjóri: Nína Gall Jörgensen
Vindafar er veigamikill áhrifaþáttur þegar kemur að umferðaröryggi fyrir alla samgöngumáta, hvort sem er á brúm eða á landi. Vindafar hefur einnig áhrif á upplifun og þægindi notenda og á nýtingu og rekstur innviða. T.d. er þekkt að það þurfi að loka vegköflum eða brúm í erfiðum vindskilyrðum. Með því að hanna vindskerma á útsettum svæðum eða þar sem vindafar hefur afgerandi áhrif á notkun og öryggi er hægt að hagræða og tryggja ásættanlegar aðstæður snemma í hönnunarferlinu.
Markmið verkefnisins er meðal annars að safna saman og draga fram núverandi stöðu og þekkingu á viðmiðum og leiðbeiningum sem snúa að áhrifum vindafars á gangandi, hjólandi og akandi umferð og varpa ljósi á hvernig nýta megi vindskerma fyrir bætt umferðaröryggi.
Til að meta áhrif og skilvirkni vindskerma í samgönguverkefnum hérlendis verða gerðar hermanir með tölulegum straumfræðilíkönum af útvöldum staðsetningum og tegundum vindskerma. Ætlunin með hermunum er að draga fram möguleika, kostnað og ávinning á þessum greiningum fyrir framtíðarverkefni Vegagerðarinnar eða fyrir þekkt útsett svæði þar sem slysatíðni vegna vindafars er há.
Í dag er vindafar veigamikill þáttur í upplifun notenda af samgöngum. Á Íslandi er vindasamt og mörg þekkt dæmi eru um óþægilegar og hættulegar vindaðstæður fyrir bæði gangandi, hjólandi og akandi. Það er því mikilvægt að vindafar og áhrif á vegfarendur fái meira vægi í hönnun á samgönguinnviðum og að þekkingu og reynslu á þessu sviði ásamt lausnum til úrbóta verði miðlað til framkvæmdaaðila og hönnuða.
Verkefnið stuðlar að markmiði Rannsóknasjóðs að sinna rannsókna- og þróunarstarfi sem stuðlar að því að Vegagerðin geti sinnt hlutverki sínu, og að afla nýrrar þekkingar og innleiða hana í starfsemi Vegagerðarinnar.
Verkefnastjóri: EFLA
Öflug og skilvirk vetrarþjónusta er nauðsynleg til að tryggja öryggi vegfarenda á þjóðvegum landsins og draga úr tímabundnum lokunum vega. Vaktstöð Vegagerðarinnar gegnir lykilhlutverki í að skipuleggja og stýra þessari þjónustu. Starfsmenn vaktstöðvarinnar reiða sig á ýmis konar gögn til að fá eins nákvæma mynd af raunaðstæðum í rauntíma svo að þjónusta á borð við snjóruðning eða hálkuvarnir sé framkvæmd á tímanlegan og skilvirkan máta, enda geta veðuraðstæður breyst hratt á Íslandi. Meðal gagna eru veðurmælingar úr veðurstöðvum Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands, veðurspár, myndir úr vefmyndavélum og úrkomumælingar úr s.k. veðursjám (radar). Veðursjárnar veita upplýsingar um úrkomubakka í allt að 240 km radíus á 5 mínútna fresti, og þekja veðursjárnar þrjár nánast allt landið. Gildi þessara upplýsinga fyrir vaktstöðina er mikið.
Í þessu verkefni verður komið á laggirnar tilraunaspákerfi sem nýtir gögn úr veðursjánni við Keflavík til að gera skammtímaspá um hreyfingu og þróun úrkomubakka, s.k. núspá (e. nowcast), fyrir suðvesturhorn landsins. Slíkir algóritmar hafa gefið góða raun víða erlendis en ekki er vitað til þess að þeim hafi verið beitt hérlendis áður.
Markmiðið er að koma einföldu kerfi upp í tilraunaskyni og veita starfsmönnum vaktstöðvar aðgang að því til prófunar. Árangurinn verður metinn í lok verkefnis ásamt mati á áreiðanleika kerfisins, veikleikum þess og göllum. Ef árangurinn verður góður mætti útvíkka kerfið til að þekja landið allt og betrumbæta það eins og þörf þykir til að koma því af tilraunastigi. Verkefnið stuðlar að markmiði Rannsóknasjóðs að sinna rannsókna- og þróunarstarfi sem stuðlar að því að Vegagerðin geti sinnt hlutverki sínu, og að afla nýrrar þekkingar og innleiða hana í starfsemi Vegagerðarinnar.
Verkefnastjóri: EFLA
Skafrenningur og snjósöfnun eru veigamiklir þættir í rekstri þjóðvega á Íslandi. Snjókóf og skaflamyndun valda verulega hættulegum aðstæðum og snjóruðningur er stór þáttur í kostnaði við vetrarþjónustu vegakerfisins. Með góðri snjóhönnun vega má oft draga úr þessum áhrifum til muna sem eykur öryggi vegfarenda og auðveldar vetrarþjónustu.
Mjög misjafnt er hversu útsettir vegkaflar eru fyrir skafrenningi. Samspil veðurfars við landslag skiptir þar höfuðmáli, sérstaklega breytileiki vinds. Það skiptir því miklu máli að geta lesið í landslagið með nákvæmum og áreiðanlegum hætti þegar skafrenningsáraun er metin. Tölvuvædd straumfræðilíkön geta nýst veghönnuðum vel í þessu skyni og er ætlunin að rannsaka það í þessu verkefni.
Áhersla er lögð á að draga fram kosti og galla mismunandi aðferða við mat á skafrenningsáraun við ólíkar aðstæður með ítarlega skjalfestum sýnidæmum. Niðurstöður munu nýtast veghönnuðum við að meta hvenær og með hvaða hætti skuli meta þessa þætti. Verkefnið stuðlar að markmiði Rannsóknasjóðs að sinna rannsókna- og þróunarstarfi sem stuðlar að því að Vegagerðin geti sinnt hlutverki sínu, og að afla nýrrar þekkingar og innleiða hana í starfsemi Vegagerðarinnar.
Verkefnastjóri: Anna Rut Arnardóttir
Lög um stjórn vatnamála tóku gildi árið 2011, en þau voru þáttur í innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins í EES samninginn. Þrettán árum síðar, í byrjun árs 2025, fóru leyfisveitendur að krefjast svokallaðs áhrifmats vatnshlota við framkvæmdir eða starfsemi sem talin er geta haft áhrif á vatn. Þetta var í kjölfar útgáfu Umhverfis- og orkustofnunar (UOS) á leiðbeiningum um hvernig framkvæma skuli slíkt mat. Lítil reynsla er því komin á gerð áhrifamats vatnshlota hérlendis og aðferðafræðin enn í mótun.
Í þessu verkefni verða fyrirliggjandi gögn notuð til að öðlast yfirsýn yfir það hvernig áhrif vegaframkvæmda á vatnshlot eru metin í nágrannalöndum okkar, greina hvaða gæðaþætti er lögð áhersla á og hvernig niðurstöðurnar eru settar fram. Áhrif á suma gæðaþætti hafa verið rannsökuð hérlendis, líkt og áhrif vegsöltunar á umhverfið, og reynsla hefurn kennt okkur annað, sbr. þverun Gilsfjarðar. Önnur áhrif eru ekki eins vel þekkt. Lítið er til að mynda vitað um mengunarefni í ofanvatni frá vegum og afdrif þeirra.
Verkefnastjóri: Alexandra Kjeld
Tilgangur verkefnisins er að meta umhverfisáhrif íslenskra vegaframkvæmda m.t.t. þolmarka jarðar (e. planetary boundaries), fremur en eingöngu með samanburði valkosta. Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningu: Hver mega umhverfisáhrif íslenskra vegaframkvæmda vera svo framkvæmdir geti talist sjálfbærar m.t.t. þolmarka jarðar og hvernig má yfirfæraþauð yfir í hagnýt, töluleg mörk sem nýta má m.a. við hönnun og gerð útboðskrafna?
Undanfarið hefur notkun vistferilsgreininga (LCA) aukist verulega og þær orðið að lykilverkfæri við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Slíkar greiningar gera aðilum kleift að bera saman mismunandi valkosti m.t.t. umhverfisáhrifa og þannig leggja mat á hvaða valkostur veldur minnstum áhrifum. Þetta hefur verið algengasta notkun vistferilsgreining,a þ.e. samanburður valkosta. Sú aðferð svarar þó ekki þeirri grundvallarspurningu hvort tiltekin framkvæmd sé í raun sjálfbæ,r þ.e. hvort umhverfisáhrif hennar séu innan þeirra þolmarka sem vistkerfi jarðar þola til lengri tíma. Valkostur getur þannig verið betri í samanburði við annan en engu að síður ósjálfbær m.t.t. þolmarka jarðar.
Í verkefninu verður framkvæmt algilt sjálfbærnimat á íslenskum vegaframkvæmdum. Í því skyni verða niðurstöður hefðbundinna vistferilsgreininga tengdar við vísindalega skilgreind þolmörk jarðar en þau lýsa svokölluðu öruggu athafnasvæði mannkyns (e. safe operating space,) þ.e. því svæði sem mannkynið þarf að halda sig innan til að viðhalda stöðugleika lykilkerfa jarða,r s.s. loftslags og vistkerfa. Umhverfisáhrifum örugga athafnasvæðisins verður úthlutað til íslenska vegakerfisins og þannig ákvarðað hve mikil umhverfisáhrif mega hljótast af íslenskum vegaframkvæmdum svo þær geti talist sjálfbærar. Niðurstöður úthlutunar verða svo nýttar til að skilgreina töluleg sjálfbærnimörk fyrir vegi, brýr og jarðgön,g t.d. sem hámarkslosun gróðurhúsalofttegunda á hverja lengdar- eða flatareiningu mannvirkis.
Verkefnastjóri: Magnús Arason
Brýr og undirgöng eru stór og mikil mannvirki sem eru byggð til þess að endast lengi og kolefnislosun frá brúargerð er umtalsverður hluti heildarlosunar á landsvísu.Þessiaveigamiklil hluti getur ekki verið undanskilinn markmiðum stjórnvalda um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.
Í verkefninu er byggt ofan á niðurstöður fyrra rannsóknarverkefnis sem skilgreindi töluleg markmið um kolefnisspor á fermeter brúargólfs fyrir vegbrýr. Þær niðurstöður hafa verið innleiddar í yfirferð vegbrúarhönnunar innan Vegagerðarinnar og hjá ráðgjöfum. Skilgreind verða sambærileg markmið fyrir göngubrýr og undirgön, með sams konar notkun í huga, þ.e. að markmið verði höfð til hliðsjónar við hönnunarrýni fyrir þessar gerðir af mannvirkjum.
Við skilgreiningu markmiða verður efnisnotkun tekin saman fyrir fjölda göngubrúa og undirganga og út frá henni fenginn gagnagrunnur um kolefnisspor mannvirkjanna. Þetta verður unnið út frá brúaskrá og magntölum sem aðgengilegar eru fyrir nýleg mannvirki. Tölfræðileg greining gagnagrunnsins mun skila markmiðum um kolefnisspor áfermetrar göngubrú, og valinn verður stiki til að nota fyrir markmið fyrir undirgöng.
Með verkefninu er þar með ætlunin að stuðla að því að byggð séu mannvirki sem ekki hafa stærra kolefnisspor en nauðsynlegt er.
Verkefnastjóri: Ása Rut Benediktsdóttir
Framkvæmdir Vegagerðarinnar, svo sem vega-, brúar- og jarðgangagerð og önnur samgöngumannvirki, eru umfangsmikil og byggð til þess að endast lengi. Kolefnislosun frá slíkum framkvæmdu, er því umtalsverður hluti heildarlosunar á landsvísu. Þessi veigamikli þáttur getur ekki verið undanskilinn markmiðum stjórnvalda um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda 2030 m.v. losun 2005. Til að ná þessum markmiðum þarf skýran ramma fyrir umhverfiskröfur sem gildir um allar framkvæmdir Vegagerðarinnar.
Á undanförnum árum hafa verið unnin rannsóknarverkefni fyrir Rannsóknarsjóð Vegagerðarinnar sem beindust að brúargerð og voru unni árinn 2023-2025. Í þeirri vinnu var annars vegar greint kolefnisspor íslenskra brúarmannvirkja og sett fram viðmið og framtíðarmarkmið um samdrátt í losun. Hins vegar var þróuð tillaga að aðferð til að innleiða umhverfiskröfur í brúarútboðum á Íslandi. Tillagan fól meðal annars í sér skilgreiningu á raunhæfu losunarþaki fyrir helstu byggingarefni, byggða á stöðu og getu markaðarins, oí þróun á aðferðafræði fyrir notkun á kolefnisverði í útboðs- ogsamningsferlii.
Verkefni þessa árs kemur í beinu framhaldi af framangreindum niðurstöðum og miðar að því að útfæra þessar tillögur til að fylgja á eftir markmiðum Vegagerðarinnar um samdrátt í losun. Áhersla verður lögð á að skilgreina raunhæft losunarþak fyrir helstu byggingarefni á grundvelli markaðs- og kostnaðargreiningar. Jafnframt verður þróuð aðferðafræði fyrir notkun kolefnisverðs sem hluta af árangurstengdu hvatakerfi í útboðs- og samningsferli.
Með þessu verkefni er stigið næsta rökrétta skref í innleiðingu umhverfiskrafna, þar sem niðurstöður kolefnissporsútreikninga eru nýttar við setningu krafna til að draga úr losun framkvæmda. Horft verður til fyrirmynda og núverandi aðferðafræði í nágrannalöndunum.
Niðurstöður verkefnisins munu nýtast Vegagerðinni við áframhaldandi innleiðingu umhverfiskrafna í útboðum fyrir framkvæmdi ogr skapa fyrirsjáanlegan ramma um kröfur til kolefnisspors byggingarefna.
Verkefnastjóri: Reynir Valdimarsson
Skoða því hvernig nýta megi endurnýtanlegar rafhlöður úr rafbílum t.d. fyrir rafhlöður í vitum, búnaði við vegi og í jarðgöngum og bera saman kosti og galla fyrir þann búnað.
Verkefnastjóri: Daði Baldur Ottósson
Rannsóknin snýr að því að skyggnast inn í ferðavenjur nemenda í framhaldsskólum og greina hvaða þættir hafa áhrif á ferðavenjur til og frá skóla. Tilgangur rannsóknarinnar er að greina hvernig megi hvetja nemendur í auknum mæli til að nýta sér vistvænar samgöngur, en flestir nemendur ferðast með vistvænum hætti í framhaldsskóla þar til þeir ná bílprófi. Ekki eru til ítarlegar opinberar upplýsingar um ferðavenjur framhaldsskólanemenda en reglulegar kannanir sýna að um 67% íbúa á aldrinum 18–24 ára aka ferðir sínar sem bílstjóri og 48% þeirra sem eru í skóla – mikilvægt er að skilja hvers vegna svo margir nemendur kjósa að aka á bíl. Ferðavenjukönnun verður framkvæmd hjá öllum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Samtök sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Verkefnastjóri: Ragnhildur Gunnarsdóttir
Markmið þessa rannsóknarverkefnis er að skrifa rýniskýrslu um reynslu af sérlögum um samgönguframkvæmdir í nágrannalöndum Íslands, í hvaða tilfellum talið er réttlætanlegt að setja slík sérlög, hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt og hverjir ávinningur og gallar slíkrar löggjafar hafa reynst vera. Í sumum tilfellum geta slík sérlög flýtt fyrir framkvæmdum, sér í lagi þar sem það flækjustig er fyrir hendi að framkvæmdir fari um stór svæði og jafnvel um mörg sveitarfélög þar sem sækja þarf um framkvæmdaleyfi hjá hverju og einu þeirra.
Verkefnastjóri: Albert Skarphéðinsson
Við undirbúning samgönguframkvæmda eru gjarnan notuð samgöngulíkön til að meta hugsanleg áhrif þeirra á umferðarmagn og umferðarmynstur. Með tilkomu samgöngulíkans höfuðborgarsvæðisins var stigið mikilvægt skref í átt að markvissari og heildstæðari greiningum, þar sem mögulegt er að bera saman mismunandi sviðsmyndir og styðja þannig við ákvarðanatöku sem snýr að samgönguframkvæmdum og byggðaþróun. Slík undirbúningsvinna er sérstaklega mikilvæg þar sem samgönguframkvæmdir eru jafnan umfangsmiklar og kostnaðarsamar og hafa langvarandi áhrif.
Samgöngulíkön byggja á tilteknum forsendum og eru því mjög háð gæðum þeirra hvað varðar áreiðanleika og niðurstöður. Algengt er að breyta mismunandi breytum í kostnað til að auðvelda samanburð milli valkosta og leggja saman liði við mat á heildarferðakostnaði. Í samgöngum er þar meðal annars horft til fórnarkostnaðar þess tíma sem einstaklingar eyða í ferðalög frá upphafsstað til áfangastaðar. Í meginatriðum felst það í mati á þeirri upphæð sem einstaklingur væri tilbúinn að greiða til að spara sér tíma eða þiggja sem bætur fyrir tapaðan tíma. Tímavirði er því ein af lykilforsendum samgöngulíkana og hefur bein áhrif á niðurstöður greininga, svo sem leiðarval og ferðamátaval.
Hingað til hefur mat á tímavirði hérlendis að stórum hluta byggst á upplýsingum frá nágrannaríkjum. Í þessu verkefni er lögð áhersla á að nýta íslenskar aðstæður og raunveruleg gögn með því að greina rannsóknir á borgunarvilja vegfarenda í jarðgöngum þar sem gjaldtaka er til staðar, svo sem í Vaðlaheiðargöngum, og þar sem henni hefur verið hætt, líkt og í Hvalfjarðargöngum. Að auki verður stuðst við rauntímagögn frá TomTom til að meta hvernig ferðalangar bregðast við gjaldtöku með vali á leiðum. Með þessum hætti er markmiðið að bæta forsendur og uppfæra samgöngulíkan höfuðborgarsvæðisins með auknum stuðningi við íslenskar aðstæður.
