Beint í efni

Stafrænir tvíburar geta breytt rekstri mannvirkja

30. september 2026

Fréttir
Þrívítt BIM-líkan af nýrri iðnaðarbyggingu með sýnilegri stálgrind, tengigangi og aðliggjandi mannvirkjum.

Þegar nýjar byggingar eru teknar í notkun glatast oft hluti þeirrar þekkingar og gagna sem verða til á hönnunarstigum og framkvæmdartíma. Með stafrænum tvíburum eða BIM-líkönum er hægt brúa bilið milli framkvæmda og reksturs bygginga með því að tengja þessar upplýsingar við raungögn úr rekstri og bæta þannig aðgengi að upplýsingum sem skapar betri grunn fyrir rekstrarstjórnun, viðhald og ákvarðanatöku.

Þetta var meðal þess sem var rætt á fyrsta viðburði BIM Skapalón, viðburðaröð á vegum BIM Íslands þar sem fagfólk miðlar reynslu og ræðir notkun upplýsingalíkana í mannvirkjagerð. Viðburðurinn fór fram föstudaginn 25. september síðastliðinn í samstarfi við EFLU og Isavia.

Á fundinum kynntu Sólon Nói Sindrason og Sævar Örn Pálsson, sérfæðingar í stjórnkerfum bygginga hjá EFLU og Sverrir Jónsson umsjónarmaður hússtjórnarkerfis hjá Isavia, prufuverkefni um stafræna tvíbura fyrir nýjar skrifstofur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík.

Verkefnið byggir á Autodesk Tandem þar sem BIM-líkön eru tengd við mæligögn úr hússtjórnarkerfi. Með þeim hætti er meðal annars hægt að skoða hitastig og loftgæði í samhengi við rými og tæknikerfi byggingarinnar. Einnig var fjallað um hvaða kröfur þarf að gera til líkana og gagna til að þau nýtist rekstraraðilum til lengri tíma.

Með viðburðum á borð við BIM Skapalón verður til dýrmætur vettvangur fyrir fagfólk til að miðla reynslu og ræða hvernig upplýsingalíkön geta skapað meiri verðmæti yfir allan líftíma mannvirkja. Þar gegna stafrænir tvíburar sífellt meira hlutverki þegar kemur að því að tengja saman hönnun, framkvæmdir og rekstur bygginga.

EFLA | Stafrænir tvíburar geta breytt rekstri mannvirkja