Þann 5. júní var haldin Umhverfisráðstefna Austurlands – Hvernig byggjum við 2050? í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Ráðstefnan, sem er samstarfsverkefni Austurbrúar, EFLU og Eyglóar, beindi sjónum að sjálfbærni í mannvirkjagerð, skipulagi og nýtingu auðlinda með Austurland í forgrunni. Um er að ræða nýja ráðstefnu sem stendur til að endurtaka árlega hér eftir og vekja athygli á umhverfismálum í brennidepli.
Verðmæti í byggð
Fjölbreytt dagskrá var á ráðstefnunni þar sem leiðandi sérfræðingar í byggingariðnaði og umhverfismálum komu saman. Starfsfólk EFLU kom þar víða við sögu, bæði í fyrirlestrum og stjórn ráðstefnunnar. Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri samfélagssviðs EFLU og sérfræðingur í vistvænni hönnun og loftslagsmálum, stýrði ráðstefnunni. Helga hefur áralanga reynslu af ráðgjöf í umhverfis- og loftslagsmálum og situr í Loftslagsráði. Hún hefur einnig sinnt vottun mannvirkja samkvæmt alþjóðlega vistvottunarkerfinu BREEAM og beitt sér fyrir innleiðingu sjálfbærra lausna í byggð og skipulagi.
Einnig flutti Alexandra Kjeld, umhverfisverkfræðingur hjá EFLU, fyrirlestur á ráðstefnunni undir yfirskriftinni Verðmæti í byggð. Þar ræddi hún meðal annars um mikilvægi þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá mannvirkjagerð. Alexandra vakti athygli á því að frá og með 1. september 2025 verði skylt að skila inn kolefnissporsútreikningum fyrir nýbyggingar sem sótt er um leyfi fyrir, skref sem undirstrikar aukna áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda og samspil byggðar og umhverfis. Fyrirlestur hennar fjallaði jafnframt um hvernig hægt er að byggja með vellíðan, samfélagsleg áhrif og kolefnisspor að leiðarljósi.

Áhugaverðar umræður
Meðal annarra fyrirlesara á ráðstefnunni voru Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt og handhafi umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, Sunna Ólafsdóttir, efnaverkfræðingur hjá Gerosion Ltd, Jóhanna Helgadóttir, skipulagsfræðingur og arkitekt hjá Nordic Office of Architecture á Íslandi, Gunnlaugur Guðjónsson, sviðsstjóri hjá Landi og skógi, Skarphéðinn Smári Þórhallsson landfræðingur, auk þeirra sem hugleiðingar heimamanns voru fluttar af Láru Vilbergsdóttur, verkefnastjóra og hönnuði.
Í lok ráðstefnu var haldið pallborð sem Helga Jóhanna stýrði þar sem spunnust áhugaverðar umræður meðal annars um nýtingu nærtækra hráefna, nýsköpun, stuðning til frumkvöðla og um breytt hugarfar í skipulagi og hönnun. Í lok ráðstefnu var þátttakendum boðið í heimsókn á Vallanes þar sem staðarhaldarar og frumkvöðlar, Eymundsson Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sögðu frá fjölbreyttri starfsemi, orkuvinnslu og nýtingu hráefna í ýmist mannvirki eða matvörur.

Hlaðvarpsþáttur með Helgu og Alexöndru
Ráðstefnan var liður í því að efla umræðu um sjálfbæra framtíð byggðar á Austurlandi og skapa vettvang fyrir samtal milli ólíkra fagaðila, sveitarfélaga og íbúa. Þar var meðal annars rætt um vistvænt skipulag, endurnýtingu byggingarefna og nýtingu innlendra auðlinda á borð við timbur og steinsteypu með minnkun umhverfisáhrifa að leiðarljósi.
Á sama tíma og þessi mikilvægi umræðuvettvangur fer fram var nýr þáttur í Austurland-hlaðvarpinu gefinn út, þar sem rætt er við bæði Helgu Jóhönnu og Alexöndru um efni ráðstefnunnar og þær áskoranir sem mannvirkjagerð stendur frammi fyrir á komandi árum. Þar var meðal annars velt upp spurningunni: Hvernig byggjum við árið 2050?
Í þessum þætti er fjallað um Umhverfisráðstefnu Austurlands 2025.
- 1 / 4
- 2 / 4
- 3 / 4
- 4 / 4