Steinþór Gíslason hefur tekið við starfi sviðsstjóra Orku hjá EFLU af Birtu Kristínu Helgadóttur sem lét af störfum í haust. Þetta er í annað skiptið sem Steinþór gegnir þessu starfi en hann var sviðsstjóri á árunum 2020-2023.
Mikil reynsla
„Það er mjög spennandi fyrir mig að taka aftur við þessu starfi. EFLA er leiðandi í orkumálum á Íslandi og hefur einnig skapað sér sterka stöðu í Evrópu á sviði orkuflutnings. Ég er mjög ánægður með að fá aftur tækifæri til þess að leiða þann frábæra hóp sérfræðinga sem hér starfar,” segir Steinþór.
Steinþór hefur starfað hjá EFLU síðastliðin 17 ár en hann hefur frá árinu 2023 einbeitt sér að uppbyggingu dótturfélags EFLU í Svíþjóð ásamt því að samræma sókn EFLU í alþjóðlegum orkuflutningsverkefnum. EFLA AB í Stokkhólmi hefur vaxið mikið og dafnað á liðnum árum og mun hann áfram leiða það starf meðfram því að vera sviðsstjóri Orku á Íslandi.
„Það er mikil þörf á uppbyggingu innviða í orkumálum, bæði hvað varðar framleiðslu og dreifingu á orku og stýringu raforkukerfa. Það er mikilvægt til að styðja við orkuskiptin og það er einnig grundvöllur fyrir hagvöxt og áframhaldandi stuðning við íslenskt atvinnulíf. Við hjá EFLU komum að orkuverkefnum úr öllum áttum og leggjum okkar af mörkum við að hanna, ráðleggja og innleiða lausnir sem stuðla að sjálfbærni og góðri nýtingu auðlinda í sátt við umhverfið og samfélagið,” segir Steinþór að lokum.
