Undanfarin ár hefur EFLA byggt upp sterka stöðu á alþjóðavettvangi sem leiðandi ráðgjafi við hönnun raforkuflutningskerfa. Uppruni þessarar sérstöðu má rekja til Íslands, en í dag teygir starfsemin sig víða um Evrópu. Mikill vöxtur hjá félaginu í verkefnum tengdum raforku skapar ekki aðeins tækifæri út fyrir landsteinana, heldur skilar hann sér beint í aukinni þekkingu og verðmætasköpun fyrir íslenskt hagkerfi.

Alþjóðlegur vöxtur EFLU í raforkuflutningum
Áratuga reynsla nýtist alþjóðamörkuðum
Allt frá árinu 1979 hefur EFLA veitt ráðgjöf við hönnun háspennulína. Alþjóðleg vegferð félagsins hófst árið 1993 með hönnun 400 kV háspennulínu í Svíþjóð. Síðan þá hefur erlend ráðgjöf fyrirtækisins vaxið jafnt og þétt og á tæplega 50 ára tímabili hefur EFLA komið að raforkuflutningsverkefnum í alls 26 löndum. Sú víðtæka reynsla sem hefur skapast, ásamt djúpri sérþekkingu sem varð upphaflega til á íslenskum markaði, er lykillinn að þeim árangri sem náðst hefur alþjóðlega.
Uppbygging á lykilmörkuðum og samkeppni á alþjóðavettvangi
Á vegferð sinni hefur EFLA byggt upp starfsemi á lykilmörkuðum með stofnun dótturfélaga og starfsstöðva í Frakklandi og Póllandi (2001), Noregi (2008), Svíþjóð (2014) og Danmörku (2024).
Í dag starfa um 130 sérfræðingar hjá EFLU á sviði raforkuflutnings. Sérfræðingarnir eru staðsettir í sex löndum og vinna að fjölbreyttum og flóknum innviðaverkefnum sem tengjast háspennulínum, tengivirkjum og jarðstrengjum. Á alþjóðlegu mörkuðum keppir EFLA við stærstu verkfræðistofur Norðurlandanna. Samkeppnisforskot okkar felst í sérhæfðri tækniþekkingu, reynslu af flóknum verkefnum og gæðum í hönnun og ráðgjöf sem hefur leitt til framúrskarandi orðspors félagsins.

Aukin umsvif samhliða orkuskiptunum
Eftirspurn eftir þjónustu EFLU hefur aukist verulega á undanförnum árum. Sú þróun stafar fyrst og fremst af aukinni fjárfestingu í orkuinnviðum á öllum okkar helstu mörkuðum, sem tengist bæði orkuskiptum og aukinni áherslu á orkuöryggi og uppbyggingu í Evrópu. EFLA hefur nýtt þessa þróun til að styrkja stöðu sína frekar og byggja upp öfluga starfsemi á alþjóðamarkaði.
Framtíðin er björt
Horfur framundan í raforkuflutningi eru góðar þar sem uppbygging orkukerfa næstu áratugi kallar á umfangsmiklar fjárfestingar. EFLA er vel staðsett til að nýta þessi tækifæri og er staðráðin í að vaxa enn frekar, styðja við uppbyggingu mikilvægra innviða og leggja sitt af mörkum til öruggrar og hagkvæmrar orkudreifingar.
Vöxtur EFLU á alþjóðavettvangi skilar sér beint í íslenskt hagkerfi og byggir upp enn frekar þekkingu, hæfni og sérhæft hugvit, öllum til góða.

Höfundur er Steinþór Gíslason, sviðsstjóri orkusviðs hjá EFLU á Íslandi og framkvæmdastjóri EFLU AB í Svíþjóð.
Hægt er að kynna sér málið nánar með því að hlusta á viðtal við Steinþór í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni frá mánudeginum 29. júní.
