Stöðug uppbygging og þróun

21.02.2014

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

Lýsi gangsetti nýja verksmiðju árið 2005. Þessi verksmiðja er ein sú glæsilegasta í heiminum og hefur gengið framar öllum vonum. Það hefur verið stöðug uppbygging og þróun síðan verksmiðjan var gangsett. Árið 2007 fékk verksmiðjan lyfjaframleiðsluleyfi frá Lyfjaeftirliti ríkisins, þá hófst einnig framleiðsla á Omega þykkni. 2012 var gangsett ný verksmiðja við hlið þeirri gömlu og framleiðslugetan tvöfölduð. Árið 2013 var síðan nýjum afkastamiklum eimara bætt við.

Stöðug uppbygging og þróun

EFLA hefur séð um alla rafmagnshönnun í byggingunum ásamt því að hanna og forrita stýringar fyrir framleiðsluna. Stjórnkerfi verksmiðjunnar byggir á Logix stýrivélum frá Rockwell og Intouch SCADA kerfi frá Wonderware ásamt SQL gagnagrunni fyrir lotuskráningar. Með gagnagrunninum er hægt er rekja afurðirnar í gegnum verksmiðjuna, frá móttöku til pökkunar á full unnum afurðum. EFLA þróaði gagnagrunninn og notenda viðmót við hann, bæði í Intouch SCADA kerfi verksmiðjunnar, og einnig var forritað vefviðmót, þannig að hægt er að nota internet vafra við að rekja framleiðsluna og skoða framleiðslu skýrslur.