Stórbætt Listasafn opnað

31.08.2018

Fréttir
Two cars parked outside white building with several tiny windows

Listasafnið á Akureyri

Listasafnið á Akureyri var opnað laugardaginn 25. ágúst eftir stækkun og heilmiklar endurbætur á húsnæðinu. Sýningarsölum var fjölgað, kaffihús tekið til starfa og safnabúð opnuð.

Markmið framkvæmdanna var að sameina gamla listasafnið og Ketilhúsið, bæta aðgengi, fjölga salarkynnum og auka notkun hússins með nýju kaffihúsi og safnabúð. Í gamla listasafninu var farið í aðgerðir til að koma fyrir veitingastað og tengja hæðirnar saman með nýjum stiga og lyftukjarna sem ekki var til staðar. Til að koma fyrir kaffihúsi á neðstu hæð byggingarinnar þurfti að rífa burt gólfplötu fyrstu hæðar og steypa nýja.

Krefjandi og áhugavert

EFLA sá um burðarþolshönnun vegna endurbóta á listasafninu. Verkið var tvíþætt og fól það í sér hönnun tengibyggingar á milli gamla listasafnsins og Ketilhússins ásamt hönnun vegna breytinga á gamla listasafninu. Verkefnið var í senn krefjandi og áhugavert sér í lagi þar sem unnið var að endurgerð gamallar byggingar sem byggð er í bratta brekku.

Framkvæmdir við endurbæturnar stóðu yfir í rúmt ár en EFLA kom að verkefninu í byrjun árs 2016. Arkitektar vegna endurbótanna voru Kurt og Pí.

EFLA óskar Akureyrarbæ og bæjarbúum til hamingju með nýtt og glæsilegt Listasafn og þakkar samstarfsaðilum fyrir gott samstarf í verkefninu.