Jólasjóði Fjarðabyggðar var veittur styrkur úr Samfélagssjóði EFLU fyrir jól. Styrkurinn er hluti af síðari úthlutun þessa árs en sérstök áhersla er á að veita góðgerðarmálum styrk úr sjóðnum í aðdraganda jóla.
Mikilvægt verkefni
Jólasjóðurinn er sameiginlegt samfélagsverkefni Rauða krossins í Fjarðabyggð, Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, Mæðrastyrksnefndar Kvenfélagsins Nönnu, Kaþólsku kirkjunnar og Þjóðkirkjunnar. Sjóðurinn hefur það markmið að styðja við einstaklinga og fjölskyldur sem eiga erfitt með að ná endum saman yfir hátíðarnar. Hann hefur verið til staðar síðan árið 2002 og aðstoðin felst í úttektarkortum í matvöruverslunum á svæðinu sem renna til einstaklinga og fjölskyldna sem sækja um stuðning.
Um er að ræða mikilvægt verkefni sem frjáls félagasamtök, sveitarfélagið og atvinnulífið koma að og hafa fyrirtæki og félög í Fjarðabyggð lagt sjóðnum lið undanfarin ár. Markmiðið er að reyna að tryggja að jólin verði hátíð samveru og hlýju fyrir alla, óháð aðstæðum.
Á meðfylgjandi mynd sést hvar Daði Benediktsson, starfsmaður EFLU á Austurlandi, veitir séra Benjamín Hrafni Böðvarssyni presti í Austfjarðaprestakalli, styrkinn.
