Eitt af þeim verkefnum sem hlutu styrk úr haustúthlutun Samfélagssjóðs EFLU var Matargjafir á Akureyri og í nágrenni. Verkefnið veitir fjölskyldum á Akureyri og í nágrenni stuðning fyrir jólin í formi gjafakorta, matargjafa og annarra nauðsynja.
Aldrei fleiri matargjafir
Þetta eru 12. jólin sem félagið aðstoðar fjölskyldur á Norðurlandi eystra og í fyrra aðstoðaði það yfir 200 fjölskyldur. Þegar enn voru nokkrir dagar til jóla þetta árið höfðu matargjafirnar náð þeirri tölu og gott betur. Þær voru orðnar vel á þriðja hundrað og ljóst að sú tala mun einungis hækka. Þörfin er því mikil fyrir það góða starf sem þarna er unnið.
Sigrún Steinarsdóttir fer fyrir félaginu og hefur gert það frá stofnun þess. Fyrst um sinn veitti hún matargjafirnar úr bílskúrnum heima hjá sér en fljótlega þurfti félagið að færa sig yfir í stærra húsnæði. Samkvæmt henni hafa beiðnir aldrei verið fleiri en í ár og um leið hefur reynst erfiðara að fá ákveðna styrki og gjafir.
Enginn þarf að standa í röð
Úthlutanir frá Matargjöfum á Akureyri og í nágrenni virka þannig að fólk sendir inn beiðnir til félagsins og er svo úthlutað tíma þar sem það getur sótt sínar matargjafir. Þannig þarf enginn að standa í röð og bíða í lengri tíma. Þá er einnig reynt að sjá til þess að úthlutunum sé lokið nokkrum dögum fyrir jól þó að dæmi séu um að það þurfi að bregðast við beiðnum rétt fyrir jól. „Einu sinni gaf ég jólamatinn minn á aðfangadag,“ segir Sigrún.
Það starfsfólk sem veitir matargjafirnar vinnur sína vinnu í sjálfboðavinnu. Auk þess er það stefna félagsins að styrkir til þess fari ekki í rekstur og því er húsnæðið þar sem þau taka á móti fólki fyrir þessi jól fengið að láni.
Starfsfólk EFLU sendir bestu kveðjur til sjálfsboðsliða Matargjafa á Akureyri og í nágrenni með von um að styrkurinn nýtist vel. Á meðfylgjandi sést hvar Hjalti Már Bjarnason, svæðisstjóri EFLU á Norðurlandi, veitir Sigrúnu Steinarsdóttur styrkinn og blómvönd í húsnæði félagsins á Akureyri.
