Beint í efni

Þátt­tak­end­ur á ráðstefnu um framtíð á Bakka

21. nóvember 2025

Fréttir
Maður í margmenni.

Ráðstefna Hafsteinn Helgason, hjá viðskiptaþróun og nýsköpun EFLU. | Myndir: Halldóra Kristín Bjarnadóttir.

Hjalti Már Bjarnason, svæðisstjóri EFLU á Norðurlandi, og Hafsteinn Helgason, hjá viðskiptaþróun og nýsköpun EFLU, sóttu ráðstefnu um framtíð á Bakka við Húsavík. Ráðstefnan var haldin á Húsavík í gær, fimmtudaginn 20. nóvember.

Verkefni á Bakka

„Ráðstefnan var þarfur vettvangur fyrir umræðu um framtíðaráform á þessu svæði og okkur fannst mikilvægt að vera hluti af henni, hvort sem það var til þess að heyra það sem fólk hafði fram að færa eða taka þátt í umræðunni,” sagði Hjalti Már eftir ráðstefnuna.

„Þjónusta EFLU við nærsamfélagið skiptir miklu máli. Við höfum verið með starfsstöð á Húsavík um nokkurt skeið og þar að auki tekið þátt í verkefnum á Bakka. Má þar nefna verkefni tengt nýtingu glatvarma frá PCC sem starfsfólk EFLU á Norðurlandi vann að,” bætti Hjalti Már við.

Kona með fyrirlestur fyrir framan fólk.

Erindi Birta Kristín Helgadóttir, fagstjóri orku og grænna lausna hjá Íslandsstofu.

Eimur, samstarfsverkefni um nýtingu auðlinda á Norðurlandi, Norðurþing, Landsvirkjun og Íslandsstofa stóðu fyrir ráðstefnunni þar sem sjónum er beint að framtíð Bakka við Húsavík sem miðstöð sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar. Meðal þeirra sem héldu erindi á ráðstefnunni voru Kristrún Frosadóttir, forsætisráðherra, og Birta Kristín Helgadóttir, fagstjóri orku og grænna lausna hjá Íslandsstofu og fyrrverandi sviðsstjóri orku hjá EFLU.

Kona heldur fyrirlestur.

Ávarp Kristrún Frosadóttir, forsætisráðherra.

EFLA - Þátttakendur á ráðstefnu um framtíð á Bakka