Beint í efni

Tilraunir með mal­biksslitlag sem er se­ment­sefju­styrkt

18. nóvember 2025

Blogg
Menn að vinnu við malbikun.

Rannsóknarverkefni á sementsefjustyrktu malbiksslitlagi er nú í gangi á Íslandi og miðar að því að meta hvort þessi slitlagsgerð geti orðið raunhæfur kostur á svæðum þar sem álag er mikið.

Í september 2025 hófst tilraun með sementsefjustyrkt malbiksslitlag, efni sem sameinar styrk steypu og sveigjanleika malbiks. Slitlagsgerðin hefur reynst vel í nágrannalöndum okkar og gæti reynst gagnleg við hönnun og viðhald gatna og þá sérstaklega biðstöðva almenningssamgangna þar sem ending slitlags er sérstaklega þörf.

Til að takast á við þetta hefur EFLA, í samstarfi við Colas Ísland, BM Vallá, Reykjavíkurborg, Vegagerðina og Strætó, hafið rannsóknarverkefni þar sem sementsefjustyrkt malbiksslitlag er prófað í fyrsta sinn á Íslandi, við eina fyrstu biðstöð Borgarlínunnar í Mjódd.

Rannsóknarverkefnið er liður í undirbúningi fyrir uppbyggingu Borgarlínunnar, þar sem slíkar stöðvar verða fyrir miklu og sértæku álagi frá þungum vagnum sem stoppa, bíða og taka af stað á sama stað ítrekað.

Hvernig virkar sementsefjustyrkt malbik?

Sementsefjustyrkt malbik má í stuttu máli lýsa sem blöndu af malbiki og steypu. Fyrst er lagt út mjög gropið malbik með háu holrými (svokallað drenmalbik), og síðan er holrými þess fyllt með sementsbundinni efju. Niðurstaðan er slitlag sem hefur sléttleika og samskeytalaust yfirborð malbiks, en styrk og slitþol steypu.

Þessi aðferð hefur þegar reynst vel í Danmörku og víðar, m.a. á flugvöllum, gámastöðvum, iðnaðarsvæðum og biðstöðvum almenningsvagna, þar sem miklar álagsbreytingar verða á litlu svæði. Kostirnir eru minni hjólfaramyndun, lengri ending og minni viðhaldsþörf.

Menn að vinnu við malbikun.

Tilraunakafli við biðstöð Strætó í Mjódd

Í september 2025 var lagður tilraunakafli við biðstöð Mjódd A, þar sem strætisvagnar stoppa mjög oft á nákvæmlega sama stað og skapa þannig mikið, staðbundið álag á slitlagið. Á svæðinu var fræst 5 cm af gamla slitlaginu og lagt nýtt sementsefjustyrkt slitlag í staðinn. 

Við útlögnina var tryggt að malbikið væri nægilega opið til að sementsefjan gæti runnið ofan í holrými þess. Efjan var síðan borin á yfirborðið í nokkrum áföngum og kaflinn lokaður í þrjá daga meðan binding fór fram. Framkvæmdin tókst vel og gaf góða mynd af því hvernig þessi aðferð virkar við íslenskar aðstæður. 

Árangur og fyrstu niðurstöður

Prófanir á prufublöndum og kjörnum hafa þegar sýnt:

  • Háa holrýmd náðist í malbikinu, sem er lykilforsenda fyrir góðri sementsfyllingu.
  • Styrktarpróf benda til þess að slitlagið geti staðið jafnfætis hefðbundnu malbiki þegar kemur að þungum og staðbundnum álagi.
  • Frost-/þíðupróf sýna að slitlagið gæti hentað vel íslenskum aðstæðum, þó reynslan í „mörkinni“ (raunverulegum aðstæðum) muni ráða úrslitum.

Horft til framtíðar

Ef niðurstöður úr Mjódd halda áfram að vera jákvæðar, gæti sementsefjustyrkt malbik orðið raunhæfur kostur í framtíðinni fyrir Borgarlínuna og önnur verkefni þar sem miklar álagsbreytingar eru á litlu svæði.

Slíkt slitlag gæti fært okkur meiri endingu, minni viðhaldskostnað og betra viðmót fyrir bæði farþega og rekstraraðila.

Nýmalbikað bílaplan.
EFLA - Tilraunir með sementsefjustyrkt malbiksslitlag